Að óbreyttu stefnir í loðnubrest

Loðnuveiðar | 4. október 2023

Að óbreyttu stefnir í loðnubrest

Hafrannsóknastofnunar leggur til að engar loðnuveiðar verði stundaðar fiskveiðiárið 2023/2024 eins og upphafsráðgjöf gerði ráð fyrir. Töluverðar líkur eru á að upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 verði einning að engar loðnuveiðar verði stundaðar.

Að óbreyttu stefnir í loðnubrest

Loðnuveiðar | 4. október 2023

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson. HAfrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði …
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson. HAfrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði stundaðar á fiskveiðiárinu. Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir

Hafrannsóknastofnunar leggur til að engar loðnuveiðar verði stundaðar fiskveiðiárið 2023/2024 eins og upphafsráðgjöf gerði ráð fyrir. Töluverðar líkur eru á að upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 verði einning að engar loðnuveiðar verði stundaðar.

Hafrannsóknastofnunar leggur til að engar loðnuveiðar verði stundaðar fiskveiðiárið 2023/2024 eins og upphafsráðgjöf gerði ráð fyrir. Töluverðar líkur eru á að upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 verði einning að engar loðnuveiðar verði stundaðar.

Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 23. ágúst til 23. september, en upphafsráðgjöfin byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2022.

Þó nokkrar vonir voru um að ný mæling myndi gefa vísbendingu um þokkalega loðnuvertíð í vetur þar sem mikil óvissa var í haustmælingum síðasta árs.

Fram kemur í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar að ráðgjöfin verði endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun árs 2024, eins og gert hefur verið undanfarin ár.

Upphafsráðgjöf 2024/2025 engin

Fram kemur að leiðangurinn í síðasta mánuði er talinn hafa náð yfir útbreiðslusvæði stofnsins. „Hafís takmarkaði yfirferð nyrst á rannsóknasvæðinu, en ekki er talið líklegt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. Loðnan var nokkuð jafndreifð á svæðinu og mælingin hennar hafði fremur lágan breytistuðul.“

Þá nam heildarmagn loðnu sem mældist 697 þúsund tonnum og var stærð eiðistofns metinn 325 þúsund tonn. Magn ókynþroska í fjölda var um 48 milljarðar en samkvæmt samþykktri aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2024/2025.

Þá segir að gögn um niðurstöður ungloðnumælinganna verða lögð fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem mun veita ráð um upphafsaflamark vertíðarinnar 2024/2025.

mbl.is