Breska þáttaröðin Orrahríð eða Crossfire nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir á RÚV. Söguþráðurinn er ekki bara spennandi heldur er hótelið í þáttunum líka gullfallegt. Hótelið er til í alvörunni en það er staðsett á uppáhaldsáfangastað Íslendinga, sólareyjunni Tenerife.

Hótelið heitir Barceló Tenerife. Vanir Tenerife-farar sem ekki hafa gist á hótelinu þekkja hótelið líklega en hótelið sker sig úr í rauðum lit. Þegar gengið er meðfram strandlengjunni fer hótelið ekki á milli mála en það er í nágrenni við golfvöllinn Golf de Sur. Góðkunningjar hótelsins kannast kannski við hótelið undir nafninu San Blas en nú hefur verið skipt um nafn.
Þættirnir eiga þó ekki að gerast á Tenerife heldur minni og fámennari eyju sem mætti líkja við Fuerteventura að því fram kemur á vef Hello. Með því að staðsetja þættina á minni og afskekktari eyju var hægt búa til meiri dramatík.
Aðalleikkonan Keeley Hawes bjó á hótelinu í tökunum. Þrátt fyrir að hótelið sé fimm stjörnu lúxushótel var það aðeins of mikið af því góða fyrir hana. „Svefnherbergið mitt var í rauninni herbergi Jo, það var mjög óvenjulegt og ég hef aldrei upplifað svona áður. Það er ekki eitthvað sem ég mæli með. Það var svolítið eins og í fangelsi en sem betur fer kom öllum vel saman,“ sagði Hawes.