Bolli Thoroddsen eigandi Takanawa í Japan og Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi hf. hafa sett sína heillandi íbúð við Háteigsveg á sölu. Smartland greindi frá því í vikunni að parið hefði fest kaup á fallegu húsi við Fjólugötu 7 í Reykjavík.

Það er einmitt vegna kaupanna á Fjólugötu 7 sem þessi 178 fm lúxusbúð er komin á sölu. Húsið sjálft var byggt 1945 og hefur verið vel við haldið. Rut Káradóttir, einn færasti innanhússarkitekt Íslands, endurhannaði íbúðina að innan.
Á gólfunum er gegnheilt viðarparket sem var slípað upp 2018 og olíuborið í kjölfarið. Í eldhúsinu er eikarinnrétting með stálborðplötum og inn af eldhúsinu er „vinnueldhús“ þar sem pláss er fyrir öll heimsins heimilistæki og gott vinnupláss.
Stórar stofur eru í íbúðinni og loftar vel á milli þeirra. Önnur gegnir hlutverki sparistofu meðan hin er borðstofa.
Heimili Ástu og Bolla er einstaklega fallegt en þar er að finna ýmis listaverk sem setja svip sinn á rýmið ásamt vönduðum og eigulegum húsgögnum.