Ævintýragjarnt útivistarfólk fjölmennti í verslun Útilífs í Skeifunni á dögunum. Um leið og fólk kynnti sér flottustu úlpurnar og bestu græjurnar fyrir veturinn fagnaði það sameiningu Útilífs og Alpana en verslanirnar hafa nú sameinast undir merkjum Útilífs.

„Með kaupunum á Ölpunum höfum við styrkt stöðu Útilífs enn frekar á markaðinum og aukið úrval okkar af fremstu útivistar- og skíðavörumerkjum heims ásamt því að fá til liðs við okkur starfsfólk með mikla þekkingu og reynslu,“ segir Elín Tinna Logadóttir, framkvæmdastjóri Útilífs.
Það var mikil stemming í fögnuðinum þar sem vinir og starfsmenn Útilífs og Alpanna skáluðu og tóku út vöruúrvalið fyrir útivistaveturinn framundan.