„Verða afar spenntir og byrja að sleikja út um“

Síldarvinnslan | 13. október 2023

„Verða afar spenntir og byrja að sleikja út um“

„Þegar rætt er um jólasíldina kemur sérstakur svipur á menn, þeir verða afar spenntir og byrja að sleikja út um,“ er fullyrt í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Í september hófst vinna við framleiðslu á hinni jólasíld félagsins en hún hefur verið framleidd í áratugi og er farið eftir ströngustu reglum við framleiðsluna.

„Verða afar spenntir og byrja að sleikja út um“

Síldarvinnslan | 13. október 2023

Vinna við framleiðslu á jólasíld Síldarvinnslunnar hófst í lok september.
Vinna við framleiðslu á jólasíld Síldarvinnslunnar hófst í lok september. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Geir Sigurpáll Hlöðversson

„Þegar rætt er um jólasíldina kemur sérstakur svipur á menn, þeir verða afar spenntir og byrja að sleikja út um,“ er fullyrt í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Í september hófst vinna við framleiðslu á hinni jólasíld félagsins en hún hefur verið framleidd í áratugi og er farið eftir ströngustu reglum við framleiðsluna.

„Þegar rætt er um jólasíldina kemur sérstakur svipur á menn, þeir verða afar spenntir og byrja að sleikja út um,“ er fullyrt í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Í september hófst vinna við framleiðslu á hinni jólasíld félagsins en hún hefur verið framleidd í áratugi og er farið eftir ströngustu reglum við framleiðsluna.

Þeir sem lengst hafa stýrt framleiðslu jólasíldarinnar eru Haraldur Jörgensen og Jón Gunnar Sigurjónsson, en hann hefur stýrt framleiðslunni í um fjóra áratugi. Þó Jón Gunnar hafi látið af störfum hjá Síldarvinnlsunni kom hann og leiðbeindi þegar framleiðslan hófst.

„Það er margt sem hafa þarf í huga þegar kemur að framleiðslu jólasíldarinnar. Númer eitt er að fá gæðasíld til að vinna með. Síldin þarf að vera norsk – íslensk, stór og fersk, veidd skammt austur af landinu. Byrjað er á að flaka síldina og síðan eru flökin brytjuð niður í hæfilega bita. Bitarnir eru síðan settir í tunnur þar sem þeir liggja og marinerast í um mánaðartíma. Loks er síldin sett í fötur og ásamt henni fer ýmislegt með í föturnar til að fáist hið eina sanna bragð. Ótrúlega margir hafa kveðið upp þann dóm að jólasíldin frá Síldarvinnslunni sé besta síld í heimi,“ segir í færslunni.

Jólasíldin er framleidd fyrir starfsfólk Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu. Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, einnig síld sem er seld til styrktar sjúkrahúsinu.

Síldarbitar tilbúnir í maríneringu.
Síldarbitar tilbúnir í maríneringu. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Geir Sigurpáll Hlöðversson
mbl.is