Nýlegt fordæmi er fyrir því að ráðherrar á Norðurlöndum skiptist á stólum en tveir ráðherrar í ríkisstjórn Danmerkur skiptu um hlutverk í lok ágúst.
Nýlegt fordæmi er fyrir því að ráðherrar á Norðurlöndum skiptist á stólum en tveir ráðherrar í ríkisstjórn Danmerkur skiptu um hlutverk í lok ágúst.
Nýlegt fordæmi er fyrir því að ráðherrar á Norðurlöndum skiptist á stólum en tveir ráðherrar í ríkisstjórn Danmerkur skiptu um hlutverk í lok ágúst.
„Í lauslegri könnun í löndunum í kringum okkur finnast engin dæmi þess, að ráðherra, sem sagt hefur af sér vegna ávirðinga í starfi, taki við öðru ráðuneyti í sömu ríkisstjórn. Má af þessu ráða hversu mjög íslenskt stjórnmálasiðferði er af öðrum toga en það sem tíðkast í nágrannalöndunum,“ fullyrti Páll Magnússon fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks fyrr í dag.
mbl.is greindi frá því í ágúst að Jakob Ellemann-Jensen, þáverandi varnarmálaráðherra og varaforsætisráðherra Danmerkur, myndi setjast á ráðherrastól Troels Lund Poulsen, þáverandi efnahagsráðherra og flokksbróður hans.
Kölluðu ráðherrarnir tveir til blaðamannafundar í kjölfarið og útskýrðu ástæður skiptanna.
Ellemann sagði verkefni ráðuneytis síns krefjast þess að ráðherra gæti einbeitt sér algjörlega að þeim, en ekki ráðherra sem gegnir formennsku flokksins og sé nýsnúinn aftur úr veikindaleyfi.
Blaðamenn á fundinum spurðu ráðherrann í kjölfarið hvort hann væri á hlaupum undan ábyrgð, vegna hneykslismála í varnarmálum, meðal annars vegna kaupa á hergögnum frá ísraelska herfyrirtækinu Elbit fyrir 1.7 milljarða.
Ellemann tjáði fjármálanefnd danska þingsins í janúar að hún hefði aðeins skamman tíma til að ráðfæra sig og úrskurða um kaupinn á vopnunum, þar sem tilboð Elbit myndi renna út í lok janúar.
Í maí á þessu ári kom aftur á móti á daginn að tilboðið myndi fyrst renna út í júní og beið málið því Ellemann er hann snéri aftur úr veikindaleyfi.
Við spurningu blaðamanns kvaðst Ellemann alls ekki hlaupast undan ábyrgð, en að hann viðurkenndi að verkefni ráðuneytisins væru stór og því hefði hann falið Poulsen verkið.