Kristján prins, elsta barn Friðriks krónprins og Mary krónprinsessu Danmerkur, varð 18 ára á sunnudaginn. Galaveisla var haldin í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn fyrir Kristján. Prinsinn er annar í erfðaröðinni á eftir föður sínum.

Ungt kóngafólk frá Svíþjóð, Noregi, Hollandi og Belgíu lét sig ekki vanta. Einnig fékk ungt fólk frá Danmörku, Færeyjum og Grænlandi boð í veisluna. Allir voru í sínu fínasta pússi en mælst var til þess að fólk klæddist galaklæðnaði og voru allar konurnar í síðkjólum og herramennirnir í einkennisbúningum, kjólfötum eða jakkafötum.
Eftir hátíðlegan kvöldverð var slegið upp dansleik. Amma Kristjáns, Margrét Þórhildur Danadrottning, gaf gestunum óvænt tónlistaratriði. Benjamin Hav & Familien tróð upp og skemmtu ungir sem aldnir sér á dansgólfinu. Friðrik krónprins var til dæmis ekki of fínn til að hoppa og klappa í takt við tónlistina á dansgólfinu.