Daníel prins, eiginmaður Viktoríu krónprinsessu Svía, gerðist sekur um umferðarlagabrot í Svíþjóð. Einkaþjálfarinn fyrrverandi gleymdi sér aðeins við aksturinn, keyrði of hratt og var sektaður.

Daníel var að keyra á vegi þar sem mátti keyra á 80 kílómetra hraða en hann var hins vegar á 87 kílómetra að því fram kemur á sænska miðlinum Expressen. Miðillinn fékk afrit af sekt lögreglunnar. Gerðist Daníel sekur um að sýna gáleysi í umferðinni. Daníel var sektaður um tvö þúsund sænskar krónur eða um 25 þúsund íslenskar krónur.
Prinsinn vildi ekki tjá sig um atvikið en upplýsingafulltrúi konungsfjölskyldunnar staðfesti fréttina.
Viktoría og Daníel byrjuðu saman árið 2002 þegar Daníel var einkaþjálfari hennar. Þau gengu í hjónaband í júní 2010 og eiga börnin Estelle prinsessu og Óskar prins.