Samband Rússa og Norður-Kóreumanna hefur náð „nýju stefnumótandi stigi“ að sögn Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem er nú staddur í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.

Þetta hafa rússneskir ríkisfjölmiðlar eftir Lavrov.
Tveggja daga heimsókn Lavrov til Norður-Kóreu hófst í gær eftir að hann fylgdi Vladimír Pútín Rússlandsforseta til Peking í Kína.
Gert er ráð fyrir að heimsókn Lavrov sé undirbúningur fyrir framtíðarheimsókn Pútín til Norður-Kóreu.
Í september hittust Pútín og Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, í Rússlandi. Kim sagði þá samband Norður-Kóreu við Rússland vera í forgangi.
Lavrov tjáði Choe Son Hui, utanríkisráðherra Norður-Kóreu, að fundur hans í ríkinu hafi markað tímamót.
Þá þakkaði hann Norður-Kóreumönnum fyrir stuðninginn við Rússa í „sérstöku hernaðaraðgerðinni“ í Úkraínu.
Samkvæmt upplýsingum Bandaríkjastjórnar hafa Norður-Kóreumenn afhent Rússum um þúsund flutningagáma með hergögnum og skotfærum. Rússnesk stjórnvöld segja Bandaríkjamenn ekki hafa neinar sannanir um slíkar vopnasendingarnar.