Skorað á áhrifavalda að uppfylla lagalegar kröfur

Áhrifavaldar | 19. október 2023

Skorað á áhrifavalda að uppfylla lagalegar kröfur

Neytendastofa hefur birt á heimasíðu sinni áskorun til áhrifavalda og efnishöfunda að uppfylla þær kröfur sem neytendalöggjöf gerir og gildir um auglýsingar.

Skorað á áhrifavalda að uppfylla lagalegar kröfur

Áhrifavaldar | 19. október 2023

Markaðssetning á samfélagsmiðlum er orðinn stór hluti af stafrænu hagkerfi …
Markaðssetning á samfélagsmiðlum er orðinn stór hluti af stafrænu hagkerfi og er áætlað að alþjóðlegt virði hennar nemi 19,98 billjón evra á þessu ári. Ljósmynd/Colourbox

Neytendastofa hefur birt á heimasíðu sinni áskorun til áhrifavalda og efnishöfunda að uppfylla þær kröfur sem neytendalöggjöf gerir og gildir um auglýsingar.

Neytendastofa hefur birt á heimasíðu sinni áskorun til áhrifavalda og efnishöfunda að uppfylla þær kröfur sem neytendalöggjöf gerir og gildir um auglýsingar.

Fram kemur á vef Neytendastofu, að í nýrri tilkynningu frá framkvæmdastjórn ESB sé skorað á alla, áhrifavalda og efnishöfunda (e. content creators) á samfélagsmiðlum, að uppfylla þær kröfur sem neytendalöggjöf gerir og gildir um auglýsingar. Þá upplýsi framkvæmdastjórnin enn fremur um að á næstu vikum muni öll neytendayfirvöld innan Evrópu hefja samræmda úttekt á færslum áhrifavalda og þeirra sem koma að efnisgerð á samfélagsmiðlum og hvort skilyrði laga um merkingar auglýsinga séu uppfyllt.

Lengi verið í forgangi

Tekið er fram, að lögmæti auglýsinga og merkinga á samfélagsmiðlum áhrifavalda hafi lengi verið í forgangi hjá evrópskum neytendayfirvöldum og hafi framkvæmdastjórnin gripið til ýmissa úrræða til að auka fræðslu á gildandi lagaumhverfi. Í þessu sambandi megi geta þess að framkvæmdastjórn ESB opnaði í vikunni lagalega miðstöð fyrir áhrifavalda (e. influencer legal hub) en markmið hennar er að veita áhrifavöldum, auglýsendum, markaðs- og auglýsingastofum og fleirum á þessu sviði almenna aðstoð um hvernig hægt er að fylgja neytendaverndarlögum innan ESB. Nánari upplýsingar um miðstöðina má finna hér.

Þá bendir Neytendastofa á að hún hafi gefið út leiðbeiningar um merkingar auglýsinga á samfélagsmiðlum en þeim er fyrst og fremst ætlað að leiðbeina þeim sem auglýsa eða útbúa auglýsingar á samfélagsmiðlum.

Líklegt að innlend yfirvöld fylgi tilteknum málum eftir

Tekið er fram að niðurstöður úttektar framkvæmdastjórnar ESB verða svo m.a. notaðar til þess að meta hvort þörf sé á nýrri löggjöf til að auka öryggi á hinum stafræna markaði (e. digital fairness fitness check).

Þá sé líklegt að innlend neytendayfirvöld fylgi eftir tilteknum málum úr úttektinni, ef þörf verður á.

mbl.is