Birna í stjórn Iceland Seafood

Iceland Seafood | 23. október 2023

Birna í stjórn Iceland Seafood

Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, mun taka sæti í nýrri stjórn Iceland Seafood International hf. (ISI) í kjölfar aðalfundar félagsins sem fram fer á morgun.

Birna í stjórn Iceland Seafood

Iceland Seafood | 23. október 2023

Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, mun taka sæti í stjórn …
Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, mun taka sæti í stjórn Iceland Seafood. mbl.is/Kristinn Magnússon

Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, mun taka sæti í nýrri stjórn Iceland Seafood International hf. (ISI) í kjölfar aðalfundar félagsins sem fram fer á morgun.

Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, mun taka sæti í nýrri stjórn Iceland Seafood International hf. (ISI) í kjölfar aðalfundar félagsins sem fram fer á morgun.

Í tilkynningu sem send var Kauphöllinni kemur fram að fimm framboð í stjórn félagsins bárust fyrir framboðsfrestinn 19. október, en fimm eru í stjórn félagsins.

Jakob Valgeir Flosason framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf. á Bolungarvík gefur kost á sér, en hann hefur átt sæti í stjórninni frá árinu 2019. Ingunn Agnes Kro sækist einnig eftir endurkjöri og hefur hún setið í stjórn frá 2019, en hún hefur setið í stjórnum fleiri félaga og er meðal annars stjórnarformaður Rariks og á sæti í stjórn Sjóvá.

Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks, mun einnig hafa gefið kosta á sér sem og Halldór Leifsson, sölu- og markaðsstjóri FISK Seafood, og munu þeir taka í sæti í stjórn ISI á morgun.

Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks.
Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks.

Guðmundur Kristjánsson varamaður

Hluthöfum er heimilt að kjósa allt að tvo varamenn í stjórn félagsins og mun Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, verða varamaður í stjórn félagsins en Brim festi nýverið kaup á 10,93% hlut í ISI sem var áður í eigu félags Bjarna Ármanssonar forstjóra ISI.

Tilkynnt var um það í september að Bjarni mun láta af störfum við lok októbermánaðar og  mun þá Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims, taka við stöðu forstjóra ISI.

mbl.is