Bílaumferð á götum borgarinnar var með minnsta móti í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Gera má ráð fyrir því að mikil þáttataka í kvennaverkfallinu sé útskýring á minni umferð í morgun.
Reykjavíkurborg tók saman gögn frá 66 teljurum innan Reykjavíkur, sem sýndu 28% minnkun á bílaumferð milli klukkan sjö og níu í morgun, samanborið við sama tíma í seinustu viku.
Í tilefni dagsins verður efnt til baráttufundar við Arnarhól klukkan 14 í dag. Hægt er að fylgjast með fréttum dagsins tengdum frídegi kvenna hér á mbl.is.