Konurnar hjá Mosfellsbakarí fá frí í tilefni dagsins

Kvennafrídagur | 24. október 2023

Í tilefni kvennafrídagsins í dag er lokað víða og meðal annars í Mosfellsbakarí. Í tilkynningu frá Mosfellsbakarí segir að fjarvera kvenna hafi mikil áhrif á rekstur Mosfellsbakarís og munu því verslanir þeirra vera lokaðar í dag, þriðjudaginn 24. október. Þar kemur einnig fram að þakklæti til allra frábæru kvennanna sem standa vaktina í bakaríinu og Mosfellsbakarí styðji þær í jafnréttisbaráttunni.

Hafliði Ragnarsson, bakara- og súkkulaðimeistari, segir að ekkert annað hefði …
Hafliði Ragnarsson, bakara- og súkkulaðimeistari, segir að ekkert annað hefði komið til greina en að gefa öllum konunum frí í dag og hafa lokað. Samsett mynd

Í tilefni kvennafrídagsins í dag er lokað víða og meðal annars í Mosfellsbakarí. Í tilkynningu frá Mosfellsbakarí segir að fjarvera kvenna hafi mikil áhrif á rekstur Mosfellsbakarís og munu því verslanir þeirra vera lokaðar í dag, þriðjudaginn 24. október. Þar kemur einnig fram að þakklæti til allra frábæru kvennanna sem standa vaktina í bakaríinu og Mosfellsbakarí styðji þær í jafnréttisbaráttunni.

Í tilefni kvennafrídagsins í dag er lokað víða og meðal annars í Mosfellsbakarí. Í tilkynningu frá Mosfellsbakarí segir að fjarvera kvenna hafi mikil áhrif á rekstur Mosfellsbakarís og munu því verslanir þeirra vera lokaðar í dag, þriðjudaginn 24. október. Þar kemur einnig fram að þakklæti til allra frábæru kvennanna sem standa vaktina í bakaríinu og Mosfellsbakarí styðji þær í jafnréttisbaráttunni.

Fjarvera kvenna hefur mikil áhrif á rekstur Mosfellsbakarís. Eins og er eru einungis konur sem vinna í afgreiðslunni á virkum dögum. Það kom því ekkert annað til greina en að loka verslunum okkar þennan dag svo allar konur í fyrirtækinu gætu tekið þátt í kvennafrídeginum,“ segir Hafliði Ragnarsson, bakara- og súkkulaðimeistari hjá Mosfellsbakarí.

Aðspurður segir Hafliði jafnframt að viðbrögð við þessari ákvörðun hafi verið góð. „Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð við þessari ákvörðun bæði frá starfsfólki og frá viðskiptavinum.“

mbl.is