Steinunn Jónsdóttir tónlistar- og blaðakona er alltaf með mörg járn í eldinum og marga bolta á lofti. Hana þekkja flestir úr rappsveitinni Reykjavíkurdætrum og reggí hljómsveitinni AmabAdamA. Steinunn er skapandi, ljóðræn, forvitin, fær og hugmyndarík og hafa fjölmargir notið hæfileika hennar í gegnum tíðina, bæði í söng, dansi og ritun.

Hún býr ásamt eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Gnúsa Yones, og tveimur sonum á fallegu heimili í Fossvoginum í Reykjavík. Aðspurð segist Steinunn spennt fyrir komandi frídögum með drengjunum og eiginmanninum.
„Við ætlum að skella okkur í sveitina og hafa það kósí. Stefnan er að spila mikið, njóta náttúrunnar og vonandi fara í sund í góðri sveitalaug ef hún er opin,“ útskýrir hún.
Steinunn segir fjölskylduna duglega að nýta sér svæðið í kringum heimili sitt. „Þegar veðrið er ekki of leiðinlegt förum við oft í göngutúra í Fossvoginum eða í Elliðaárdalnum, sem er hérna rétt hjá. Okkur finnst líka mjög gaman að fara á bókasöfn, en þar finna allir fjölskyldumeðlimir eitthvað við sitt hæfi.
Fjölskylduland er líka áfangastaður sem við heimsækjum reglulega. Annars erum við dugleg að kíkja til ættingja eða bjóða heim. Þar kveikjum við á góðri tónlist og dönsum. Þetta þarf alls ekki að vera flókið,“ útskýrir Steinunn.
Deila börnin áhugamálum?
„Það er mikill aldursmunur á bræðrunum, yngri er tveggja ára og eldri er tíu ára gamall. Þrátt fyrir það eru þeir mjög góðir og elska að hoppa á trampólíni, kubba, horfa á eitthvað skemmtilegt og dansa með mömmu. Feluleikur er einnig mjög vinsæll leikur hjá þeim báðum og þeim yngri finnst eldri bróðir sinn líka fyndnastur í heimi svo þeir hlæja mikið saman,“ segir Steinunn að lokum, sem heldur nú spennt af stað í sveitaferð.