Allur heimurinn syrgir Matthew Perry, einn þekktasta gamanleikara tíunda áratugarins, sem lést á laugardag. Leikarinn, sem skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki sínu sem hinn spaugsami Chandler Bing í gamanþáttunum Friends, hafði haldið sig frá sviðsljósinu síðastliðin ár til að einbeita sér að sjálfum sér eftir áralanga baráttu við áfengis- og fíkniefnaneyslu.

Þrátt fyrir óreglu og ýmiss konar erfiðleika átti Perry í þó nokkrum samböndum um ævina, en tókst aldrei að festa ráð sitt. Hann sagði meðal annars frá því í endurminningum sínum, Friends, Lovers and the Big Terrible Thing, sem kom út á síðasta ári að hann hafi verið hugfanginn af vinkonu sinni og meðleikkonu, Jennifer Aniston.
Óskarsverðlaunaleikkonan Julia Roberts kynntist Perry stuttu áður en hún fór með lítið hlutverk í annarri þáttaröð af Friends. Hún tók að sér hlutverkið með einu skilyrði, að hún léki á móti Perry. Þegar hann frétti af því var hann snöggur til og sendi Roberts 36 rauðar rósir og kort sem á stóð: „Það eina meira spennandi en að fá þig til að leika í þættinum er að nú hef loksins afsökun til þess að senda þér blóm.“
Perry og Roberts hófu samband sitt stuttu seinna en sex mánuðum síðar var því lokið. Leikarinn sleit því þar sem hann taldi sig ekki „nægan“ fyrir Roberts. Hann lést á 56 ára afmælisdegi leikkonunnar.
Karakter Perry í Friends, Chandler Bing, var mikill aðdáandi Baywatch og þá sérstaklega hinnar vinsælu Yasmine Bleeth. Perry átti í ástarsambandi við fyrrverandi leikkonuna stuttu eftir að hann hætti með Roberts.
Neistar flugu á milli Perry og leikkonunnar Neve Campbell, sem þekktust er fyrir leik sinn í Scream-hrollvekjunum, við tökur á gamanmyndinni Three to Tango. Ástin entist ekki lengi og var parið hætt saman fyrir frumsýningu myndarinnar.
Samband Perrys og bandarísku sápuóperuleikkonunnar Maeve Quinlan var sagt fyrsta alvöru samband leikarans eftir hann kom fram í sviðsljósið. Lítið er vitað um samband parsins en þau voru saman í rúmt ár.
Perry átti í tveggja ára sambandi við íþróttakonuna Rachel Dunn, en hún er atvinnukona í blaki. Perry var talsvert eldri en Dunn en 14 ára aldursmunur var á parinu.
Leikkonan Lizzy Caplan, sem margir þekkja úr bandarísku þáttaröðinni New Girl og kvikmyndinni Mean Girls, var kærasta Perry í sex og er það lengsta samband leikarans. Parið kynntist óvænt í 23 ára afmælisveislu leikkonunnar sem Perry mætti óboðinn í. Þau skildu árið 2012 og voru miklir vinir allt til enda.
Perry trúlofaðist hinni 29 ára gömlu Molly Hurwitz árið 2020 eftir tveggja ára samband. Sex mánuðum síðar ákváðu þau að slíta trúlofun sinni. Samband þeirra var síðasta samband leikarans fyrir ótímabært fráfall hans.