Rosalía stældi Björk

Hrekkjavakan | 31. október 2023

Rosalía stældi Björk

Svanakjóllinn sem Björk klæddist á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2001 er án efa einn umtalaðasti og þekktasti kjóll sem sést hefur á rauða dreglinum, fyrr og síðar. 

Rosalía stældi Björk

Hrekkjavakan | 31. október 2023

Alveg málið!
Alveg málið! Samsett mynd

Svanakjóllinn sem Björk klæddist á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2001 er án efa einn umtalaðasti og þekktasti kjóll sem sést hefur á rauða dreglinum, fyrr og síðar. 

Svanakjóllinn sem Björk klæddist á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2001 er án efa einn umtalaðasti og þekktasti kjóll sem sést hefur á rauða dreglinum, fyrr og síðar. 

Tónlistarkonan vakti mikla athygli fyrir kjólinn, sem hannaður var af Marjan Pejoski, á sínum tíma og nú yfir 20 árum síðar er kjóllinn enn að vekja verðskuldaða athygli og það hjá yngri kynslóðum. 

Mikill aðdáandi Bjarkar

Spænska söngkonan Rosalía, sem hefur á undanförnum árum átt vaxandi velgengni að fagna, er mikill aðdáandi Bjarkar og hefur lengi farið fögrum orðum um íslensku tónlistarkonuna, list hennar og menningarleg áhrif. 

Sú mætti í eftirlíkingu af svanakjólnum í eitt stærsta Hollywood-partí hrekkjavökuhelgarinnar, haldið af fyrirsætunni Kendall Jenner á Château Marmont hót­el­inu í Los Ang­eles.

Rosalía var stórglæsileg í svanakjólnum en söngkonan stældi allt frá kjólnum að skónum sem Björk klæddist á Óskarsverðlaunahátíðinni og var einnig með svipaða hárgreiðslu.

Rosalía og Björk tilkynntu nýverið um tónlistarsamstarf en þær vinna nú hörðum höndum að laginu Oral sem Björk samdi fyrir 20 árum síðan. 

mbl.is