Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason var meðal gesta í stjörnum prýddu hrekkjavökupartíi ofurfyrirsætunnar Heidi Klum sem haldið var síðastliðinn þriðjudag í New York-borg.

Á ári hverju heldur hrekkjavökudrottningin glæsilegt partí fyrir ríka og fræga fólkið sem er þekkt fyrir að tjalda öllu til fyrir viðburðinn. Sjálf fer Klum alla leið á hrekkjavökunni, en í ár klæddi hún sig upp sem gríðarstór páfugl.
Rúrik birti myndir úr partíinu á Instagram-reikningi sínum, en hann stillti sér meðal annars upp með heitustu TikTok-stjörnum heims, þeim Tim Schaecker og Jacob Rott sem eru hluti af strákabandinu Elevator Boys.
Hann hitti einnig Klum og eiginmann hennar, Tom Kaulitz, sem mætti sem páfuglaegg. Sjálfur mætti Rúrik sem vampíra í partíið.