„Þessar meðferðir hafa slegið öll met hjá okkur“

Kynning | 3. nóvember 2023

„Þessar meðferðir hafa slegið öll met hjá okkur“

Húðfegrun er rótgróin húðmeðferðarstofa sem hefur verið starfandi í yfir 23 ár. Hjá Húðfegrun starfar faglærður hópur sem samanstendur af lækni, hjúkrunarfræðingum og snyrtifræðingum. 

„Þessar meðferðir hafa slegið öll met hjá okkur“

Kynning | 3. nóvember 2023

Hjá Húðfegrun starfar faglærður hópur meðferðaraðila með mikla sérfræðiþekkingu á …
Hjá Húðfegrun starfar faglærður hópur meðferðaraðila með mikla sérfræðiþekkingu á sviði húðmeðferða. mbl.is/Árni Sæberg

Húðfegrun er rótgróin húðmeðferðarstofa sem hefur verið starfandi í yfir 23 ár. Hjá Húðfegrun starfar faglærður hópur sem samanstendur af lækni, hjúkrunarfræðingum og snyrtifræðingum. 

Húðfegrun er rótgróin húðmeðferðarstofa sem hefur verið starfandi í yfir 23 ár. Hjá Húðfegrun starfar faglærður hópur sem samanstendur af lækni, hjúkrunarfræðingum og snyrtifræðingum. 

Húðfegrun býður heildrænar húðmeðferðir fyrir andlit og líkama með það að markmiði að bæta heilsu húðarinnar á náttúrulegan hátt. Innan fyrirtækisins er lögð rík áhersla á að fylgjast með stefnum og straumum á sviði húðmeðferða og húðumhirðu og bjóða einungis upp á öflugustu lausnirnar og bestu fáanlegu tækin á markaðnum hverju sinni.

Bryndís Alma Sinn, framkvæmdastjóri Húðfegrunar, segir húðmeðferðir geta gert kraftaverk.
Bryndís Alma Sinn, framkvæmdastjóri Húðfegrunar, segir húðmeðferðir geta gert kraftaverk. Ljósmynd/Húðfegrun

Góður og öflugur tækjabúnaður

„Við hjá Húðfegrun leggjum ríka áherslu á fagmennsku og sérþekkingu hjá meðferðaraðilum okkar,“ segir Bryndís Alma Sinn, framkvæmdastjóri Húðfegrunar en reglulega sækja meðferðaraðilar sér menntun og þekkingar hjá einum fremsta tækjaframleiðanda heims.

„Það er okkur mjög mikilvægt að bjóða viðskiptavinum okkar aðeins upp á það besta. Við leggjum allt okkar kapp á að veita faglega og framúrskarandi þjónustu og bjóða upp á einn besta tækjabúnað sem völ er á í heimi húðmeðferða í dag,“ segir Bryndís.

„Alma Lasers-tækjabúnaðurinn er einn þeirra fimm bestu á heimsvísu. Við notum þann búnað við framkvæmd meðferða ásamt því að við notum einnig hreinasta og öruggasta fyllingarefnið sem býðst á markaðnum í dag því okkur er mikið í mun að nota eins náttúruleg efni og hægt er,“ útskýrir hún og skírskotar í fyllingarefnið frá Neuavia Organic sem Húðfegrun notast eingöngu við í meðferðum.

Tækjabúnaðurinn sem Húðfegrun notast við er einn sá besti sem …
Tækjabúnaðurinn sem Húðfegrun notast við er einn sá besti sem völ er á um allan heim. Ljósmynd/Húðfegrun

Fagmennskan í fyrirrúmi

Síðustu ár hefur Húðfegrun verið í mikilli sókn á markaði húðmeðferða og hefur stöðugt bæst við viðskiptahóp stofunnar. Það segir Bryndís vera vegna trausts orðspors sem Húðfegrun hefur getið sér síðustu áratugina með þekkingu og fagmennsku að vopni.

„Okkar viðskiptavinir koma aftur og aftur til okkar og hafa gert í mörg ár, en svo eru líka alltaf nýir viðskiptavinir að bætast við. Við leggjum okkur mikið fram við að gera hlutina á faglegan hátt þar sem ströngum skilyrðum er framfylgt ásamt því að bjóða upp á persónulega þjónustu í hlýju umhverfi.“

Húðfegrun býður upp á fjölbreytt úrval húðmeðferða sem allar búa yfir sérstökum eiginleikum. Að sögn Bryndísar hafa vinsældir húðmeðferða vaxið mikið síðustu ár sem aukin vitundarvakning um mikilvægi húðumhirðu hafi hrundið af stað.

„Það eru nokkrar meðferðir sem hafa slegið öll met hjá Húðfegrun undanfarin ár en þær eru laserlyfting, Hollywood Glow, húðslípun og gelísprautun. Þessar meðferðir eru alltaf jafn vinsælar hjá okkur.“

Húðmeðferðir framkvæmdar með laser eru sérlega árangursríkar.
Húðmeðferðir framkvæmdar með laser eru sérlega árangursríkar. mbl.is/Árni Sæberg

Vinsælustu meðferðirnar  

Demantspakkinn

Frábær meðferðartvenna sem inniheldur laserlyftingu og Hollywood Glow-meðferðir.

Byrjað er með laserlyftingu sem er öflugasta anti-aging-meðferð á markaðnum. Lasertæknin sem notast er við vinnur djúpt niður í undirlag húðarinnar og örvar þar framleiðslu kollagens og elastíns án þess að skadda efsta lagið. Laserlyftingin hefur því þann kost að vera bæði sársaukalaus og án aukaverkana. Hún hentar sérlega vel til að þétta og styrkja slappa húð á neðra andliti og hálsi, skerpa kjálkalínuna og vinna á vökvasöfnun, þrota og þreytu á augnsvæði.

Eftir laserlyftingu er framkvæmd Hollywood Glow-meðferð sem gefur húðinni samstundis aukna þéttingu og aukinn ljóma. Einnig spornar meðferðin gegn öldrun húðarinnar og áferð hennar verður fallegri. Árangur af meðferðinni kemur samstundis í ljós og húðin verður fallega ljómandi eftir meðferð.

Gelísprautun

Hjá Húðfegrun er gelísprautun framkvæmd af hjúkrunarfræðingum sem fá reglulega þjálfun frá bestu sérfræðingum heims á sviði fylliefna.

Húðfegrun býður einungis upp á gelísprautun með Neauvia Organic, sem er hreinasta og öruggasta fylliefnið á markaðnum. Um er að ræða hreint kristalsgel sem inniheldur fjölsykrusýrur sem er að finna í öllum vefjum líkamans. Efnið er skaðlaust og samanstendur af náttúrulegum innihaldsefnum. Svolítið persónubundið er hversu lengi fyllingin endist en dæmi eru um að það sé frá sex mánuðum og upp í nokkur ár.

Gelísprautun má nota til að vinna til baka öldrun húðar með því að fylla upp í hrukkur og línur og veita húðinni skarpari útlínur, lyftingu og fyllingu.

Hjá Húðfegrun starfa reynslumiklir hjúkrunarfræðingar sem hafa viðamikla þekkingu á …
Hjá Húðfegrun starfa reynslumiklir hjúkrunarfræðingar sem hafa viðamikla þekkingu á gelísprautun og notast aðeins við öruggasta efnið á markaðnum í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Húðslípun og lúxus húðslípun

Húðslípun og lúxus húðslípun eru alltaf á meðal vinsælustu meðferða Húðfegrunar. Það er góð og gild ástæða fyrir þessum stöðugu vinsældum, enda skila þessar meðferðir hreinni húð sem glóir af heilbrigði.

Eiginleikar húðslípunar:

  • Gerir áferð húðarinnar fallegri
  • Vinnur burt unglingabólur
  • Dregur úr fínum línum og hrukkum
  • Hreinsar óhreina húð
  • Bætir áferð húðar og minnkar ásýnd svitahola
  • Gerir húðina móttækilegri fyrir virkum efnum í húðvörum
  • Þéttir og styrkir eldri húð sem farin er að þynnast
  • Frískar upp á þreytta húð

Eiginleikar lúxus húðslípunar:

  • Eykur ljóma og gefur húðinni frísklegt yfirbragð
  • Gefur húðinni raka og næringu
  • Hreinsar óhreinindi úr húð
  • Minnkar ásýnd svitahola
  • Eykur árangur lasermeðferða
  • Inniheldur fjölda virkra innihaldsefna sem vinna gegn öldrun
  • Kemur jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar og dregur úr bólumyndun
Húðfegrun býður viðskiptavinum sínum upp á persónulega þjónustu í hlýju …
Húðfegrun býður viðskiptavinum sínum upp á persónulega þjónustu í hlýju umhverfi. Ljósmynd/Húðfegrun

Háræðaslit og rósroði

Rósroði og háræðaslit eru húðvandamál sem margir glíma við. Oft blossar þetta vandamál meira upp þegar fer að hausta og veðurfarsbreytingar eru meiri. Margir þeirra sem leita til Húðfegrunar hafa lengi reynt að fela rósroða eða áberandi háræðaslit með hyljara eða farða en Húðfegrun býður upp á hátækni lasermeðferðir sem geta fjarlægt háræðaslit og haldið rósroða niðri.

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um fjölbreytt úrval meðferða hjá Húðfegrun.

mbl.is