„Hjalti reyndi að drífa sig í heiminn í stigaganginum heima“

Brjóstagjöf | 4. nóvember 2023

„Hjalti reyndi að drífa sig í heiminn í stigaganginum heima“

Íslenskufræðingurinn og fyrirsætan Hulda Vigdísardóttir eignaðist sitt fyrsta barn í janúar síðastliðnum, soninn Hjalta Birgisson Hulduson, með kærasta sínum Birgi Erni Sigurjónssyni. Hulda segist hafa upplifað frábæra meðgöngu og fæðingu en fái stundum hálfgert samviskubit yfir því, en sjálf hafi hún upplifað ótta á meðgöngunni yfir því að eitthvað færi úrskeiðis eftir að hafa heyrt ófáar hryllingssögurnar af meðgöngu og fæðingu.

„Hjalti reyndi að drífa sig í heiminn í stigaganginum heima“

Brjóstagjöf | 4. nóvember 2023

Hulda Vigdísardóttir varð móðir í janúar síðastliðnum þegar sonur hennar, …
Hulda Vigdísardóttir varð móðir í janúar síðastliðnum þegar sonur hennar, Hjalti Birgisson Hulduson kom í heiminn. Samsett mynd

Íslensku­fræðing­ur­inn og fyr­ir­sæt­an Hulda Vig­dís­ar­dótt­ir eignaðist sitt fyrsta barn í janú­ar síðastliðnum, son­inn Hjalta Birg­is­son Huldu­son, með kær­asta sín­um Birgi Erni Sig­ur­jóns­syni. Hulda seg­ist hafa upp­lifað frá­bæra meðgöngu og fæðingu en fái stund­um hálf­gert sam­visku­bit yfir því, en sjálf hafi hún upp­lifað ótta á meðgöng­unni yfir því að eitt­hvað færi úr­skeiðis eft­ir að hafa heyrt ófá­ar hryll­ings­sög­urn­ar af meðgöngu og fæðingu.

Íslensku­fræðing­ur­inn og fyr­ir­sæt­an Hulda Vig­dís­ar­dótt­ir eignaðist sitt fyrsta barn í janú­ar síðastliðnum, son­inn Hjalta Birg­is­son Huldu­son, með kær­asta sín­um Birgi Erni Sig­ur­jóns­syni. Hulda seg­ist hafa upp­lifað frá­bæra meðgöngu og fæðingu en fái stund­um hálf­gert sam­visku­bit yfir því, en sjálf hafi hún upp­lifað ótta á meðgöng­unni yfir því að eitt­hvað færi úr­skeiðis eft­ir að hafa heyrt ófá­ar hryll­ings­sög­urn­ar af meðgöngu og fæðingu.

Í starfi sínu hef­ur Hulda skrifað mikið, þýtt og gefið út bók. Hún hef­ur einnig starfað sem fyr­ir­sæta bæði hér á landi og er­lend­is og tekið þátt í ýms­um keppn­um fyr­ir Íslands­hönd, nú síðast Miss Multi­verse í Dóm­in­íska lýðveld­inu og World Top Model í New York-borg.

Hulda hefur starfað sem fyrirsæta bæði hér á Íslandi og …
Hulda hef­ur starfað sem fyr­ir­sæta bæði hér á Íslandi og er­lend­is.

„Þurfti að ganga á eft­ir mér í meira en ár“

Hulda og Birg­ir kynnt­ust fyr­ir tæp­um fimm árum, en á þeim tíma hafði Hulda eng­an áhuga á því að fara í sam­band. „Við kynnt­umst í sam­eig­in­legri út­skrift­ar­veisla hjá einni bestu vin­konu minni úr MR og unn­usta henn­ar sem er einn besti vin­ur Birg­is síðan úr grunn­skóla. Þetta var reynd­ar pínu fyndið – við vin­kon­urn­ar höfðum haldið litlu jól rúm­um mánuði áður og þar sagði vin­kona mín mér frá Birgi og að við vær­um „full­kom­in fyr­ir hvort annað“. Strák­arn­ir héldu síðan spila­kvöld milli jóla og ný­árs þar sem Birg­ir fékk víst að vita af mér og að hann myndi hitta mig í út­skrift­ar­veisl­unni,“ rifjar Hulda upp. 

Þegar þau hitt­ust í veisl­unni var Hulda búin að stein­gleyma því sem fram fór á litlu jól­un­um, en Birg­ir hafði engu gleymt og sett­ist hjá Huldu. „Til að gera langa sögu stutta þá ætlaði ég ekki í sam­band á þess­um tíma en hann var sem bet­ur fer nógu þrjósk­ur og þraut­seig­ur og gafst aldrei upp. Við vor­um sam­an allt það vor en síðan lagðist ég í ferðalög og kom ekki heim til Íslands nema í þrjá daga til að taka jóla­próf og þá hitt­umst við líka,“ bæt­ir hún við. 

„Það er algerlega honum að þakka að við erum hér …
„Það er al­ger­lega hon­um að þakka að við erum hér í dag því greyið þurfti að ganga á eft­ir mér í meira en ár. Ég verð hon­um alltaf þakk­lát – hann er besti vin­ur minn og það er mín mesta gæfa í líf­inu að vera mamma Hjalta okk­ar.“

Fann strax á sér að hún væri ófrísk

Aðspurð seg­ir Hulda þau Birgi hafa orðið mjög glöð þegar þau komust að því að hún væri ófrísk.

„Ég fann ein­hvern veg­inn strax á mér að ég væri ófrísk, löngu áður en ég tók fyrsta óléttu­prófið. Ég fékk samt aldrei neina ógleði né önn­ur lík­am­leg ein­kenni; mér leið bara eins og ég væri ekki „ein“, eins ein­kenni­lega og það kann að hljóma. Ég var að vinna sem flug­freyja hjá Icelanda­ir allt sum­arið og strax í einu stopp­inu í maí gekk ég inn í Disney-búð á Times Square og keypti lít­inn bangsa, svo viss var ég. Kannski var það ósk­hyggja eða hvort tveggja, grun­ur og ósk­hyggja í bland. Þegar ég kom heim gat ég samt ekki beðið leng­ur og tók óléttu­próf sem var já­kvætt,“ seg­ir hún.

„Við vorum ekki að reyna eignast barn en „leyfðum því …
„Við vor­um ekki að reyna eign­ast barn en „leyfðum því að ger­ast“ í þetta skipti og krílið var meira en vel­komið.“

„Ég þori varla að segja frá því þegar ég er spurð“

Hulda seg­ir meðgöng­una hafa gengið von­um fram­ar og að hún hafi ekki upp­lifað ein­kenni sem hún hafði oft heyrt að fylgi meðgöngu, eins og ógleði, brjóstsviða, grind­argliðnun eða bjúg.

„Ég þori varla að segja frá því þegar ég er spurð en satt að segja þá leið mér al­veg eins lík­am­lega á meðgöng­unni og áður en ég varð ófrísk eða eft­ir að ég átti. Ég fann auðvitað fyr­ir hreyf­ing­um þegar krílið byrjaði að hreyfa sig en ekk­ert annað. Ég var mjög hepp­in,“ seg­ir Hulda og bæt­ir við að hún hafi haldið áfram að gera alla þá hluti sem hún var vön að gera. 

Hún ferðaðist mikið á meðgöng­unni, en Hjalti heim­sótti yfir 25 lönd þegar hann var enn í kúl­unni og seg­ist Hulda ekki hafa fundið fyr­ir nein­um óþæg­ind­um á ferðalög­um sín­um en viður­kenn­ir að það hafi stund­um reynst erfitt að finna ger­il­sneydd­an mat.

Hulda gat haldið áfram að hreyfa sig á meðgöngunni og …
Hulda gat haldið áfram að hreyfa sig á meðgöng­unni og fór á síðustu æf­ing­una fjór­um dög­um fyr­ir fæðingu. Hún seg­ist al­mennt borða holl­an mat og hafi því engu breytt þar en hætti þó strax að drekka orku­drykki og hef­ur látið þá eiga sig síðan.

Hulda seg­ir meðgöng­una hafa verið auðvelda lík­am­lega, en þegar hún lít­ur til baka þá hefði hún viljað slaka meira á and­lega. „Ég spáði alltof mikið í hvað gæti gerst á meðgöng­unni eða farið úr­skeiðis í fæðingu. Maður kemst ein­hvern veg­inn held­ur ekki hjá því að heyra alls kyns hryll­ings­sög­ur úti í bæ og virðist heyra þær frek­ar en þær góðu, því miður. Ég var alls eng­in tauga­hrúga en hafði samt áhyggj­ur innst inni af ýmsu sem reynd­ist allt óþarft,“ seg­ir hún. 

„Ég fæ stund­um pínu sam­visku­bit hversu létt ég fór í gegn­um meðgöngu og fæðingu. Ég veit um fleiri stelp­ur í sömu spor­um, því það er eins og maður þori varla að segja frá því þegar allt geng­ur vel sem mér finnst pínu at­hygl­is­vert. Ég hefði alla­vega miklu frek­ar viljað heyra all­ar góðu meðgöngu- og fæðinga­sög­urn­ar en þær slæmu,“ bæt­ir hún við. 

Verðandi foreldrar spenntir fyrir hlutverkinu yfir hátíðarnar.
Verðandi for­eldr­ar spennt­ir fyr­ir hlut­verk­inu yfir hátíðarn­ar.

Reyndi að drífa sig í heim­inn í stiga­gang­in­um

Hulda seg­ir fæðing­una hafa gengið hratt og vel fyr­ir sig, en Hjalti lét ekki bíða eft­ir sér og reyndi að drífa sig í heim­inn í stiga­gang­in­um heima hjá þeim aðfaranótt 30. janú­ar. Hulda á sjálf af­mæli 29. janú­ar og hafði verið með af­mæl­is­boð fyr­ir vini og ætt­ingja þann dag­inn. Þegar hún var að klæða sig fyr­ir boðið tók hún eft­ir því að óléttukúl­an virt­ist vera aðeins neðar en vana­lega en spáði lítið í það þar sem hún fann ekki fyr­ir neinu óvenju­legu og leið vel í veisl­unni. 

„Ég var full­geng­in með hann á af­mæl­is­dag­inn minn en við Birg­ir bjugg­umst þó hvor­ugt við því að fá hann al­veg strax í heim­inn. Við fór­um því að sofa um tvöleytið og nokkr­um tím­um síðar vaknaði ég til að fara á sal­ernið. Áður en við viss­um af vor­um við svo mætt upp á fæðinga­deild,“ seg­ir hún.

„Litli kútur beið þar til allir afmælisgestir voru farnir og …
„Litli kút­ur beið þar til all­ir af­mæl­is­gest­ir voru farn­ir og þar til ég var búin að opna síðustu gjaf­irn­ar þar sem hann vildi jú vera aðalpakk­inn.“

Hulda seg­ist hafa þver­tekið fyr­ir að fara upp á fæðinga­deild til að byrja með, enda hafi hún verið hand­viss um að ekk­ert væri að ger­ast og þótti því óþarfi að rjúka af stað til þess eins að vera send aft­ur heim. Hún samþykkti það þó að lok­um með tregðu að fara upp á spít­ala og er í dag afar þakk­lát Birgi og móður sinni fyr­ir að hafa komið sér upp á spít­ala.

Hulda og Birg­ir eru bú­sett á efstu hæð í fjög­urra hæða fjöl­skyldu­húsi, en móðir Huldu býr á neðstu hæðinni. „Mamma kom upp og hringdi upp á spít­ala, en þarna var ég þó lík­leg­ast þegar kom­in með 10 cm í út­víkk­un svo sem bet­ur fer samþykkti ég að mamma færi og næði í bíl­inn,“ rifjar hún upp. „Birg­ir tók mig í fangið og hélt á mér niður fjór­ar hæðir, en í stiga­gang­in­um á leiðinni niður birt­ist ann­ar fót­ur barns­ins, enn í belgn­um, og því ekk­ert annað í stöðunni en að fá blá ljós út á Bergstaðarstræti.“

„Ég þurfti að „halda í mér“ þar sem barnið var ekki í höfuðstöðu og þessi eina gata að heim­an og á spít­al­ann hefði ekki mátt vera lengri. Ég bað Birgi að syngja fyr­ir mig í sjúkra­bíln­um og hann söng Gamla Nóa há­stöf­um alla leið inn á fæðinga­stofu þar sem ynd­is­legt starfs­fólk tók á móti okk­ur. Um leið og ég fékk leyfi til að rembast skaust litli prins­inn svo í heim­inn í ein­um remb­ingi,“ seg­ir Hulda og bæt­ir við að móðir henn­ar hafi rétt náð upp á fæðinga­deild til að vera viðstödd fæðing­una.

„Ég fékk strákinn okkar í fangið og mér fannst mig …
„Ég fékk strák­inn okk­ar í fangið og mér fannst mig hljóta að vera að dreyma. Ég skildi ekk­ert í því hvernig ég var eina stund­ina ný­vöknuð heima á leið á sal­ernið en þá næstu kom­in með þenn­an gull­fal­lega mola í fangið.“

Fékk ósk­ir sín­ar upp­fyllt­ar þessa af­mæl­isnótt

Hulda seg­ist hafa fengið all­ar sín­ar ósk­ir upp­fyllt­ar þessa af­mæl­isnótt og því hafi hjarta henn­ar verið fullt af þakk­læti. Bæði Birg­ir og mamma henn­ar gátu verið viðstödd fæðing­una, en það munaði ein­um sóla­hringi að Birg­ir hefði þurft að skjót­ast er­lend­is vegna vinnu í ör­fáa daga.

„Eft­ir fæðing­una leit Birg­ir upp og sá hlát­urgas fyr­ir ofan rúmið, hló og sagði: „Sko, það gafst nú ekki einu sinni tími til að hugsa út í þetta.“ Og það var líka rétt; all­ar pæl­ing­arn­ar og áhyggj­ur af minni hálfu um mænurót­ar­deyf­ingu, hlát­urgas, vend­ingu, fæðing­ar­stofu með baðkari og annað reynd­ust óþarfar. Ég fékk enga deyf­ingu, enda gerðist þetta allt svo ótrú­lega hratt og á svo lygi­lega full­kom­inn máta að ég trúi því varla enn,“ rifjar hún upp. 

„Veðrið var víst al­veg eins og þegar ég fædd­ist og því hvarf mamma smá aft­ur á bak í tím­ann þegar hún mætti aft­ur upp á fæðing­ar­deild slétt­um 29 árum og nokkr­um klukku­stund­um seinna á meðan að hvít­um snjó­korn­um kyngdi fyr­ir utan,“ bæt­ir hún við. 

Hulda seg­ist líka hafa verið þakk­lát fyr­ir að Hjalti hafi komið í heim­inn eft­ir miðnætti og fengi því sinn eig­in af­mæl­is­dag. „Birg­ir gaf mér ein­mitt 29 bleik­ar rós­ir á af­mæl­is­dag­inn minn þar sem ég varð 29 ára þann 29. janú­ar en í veisl­unni gaf frænka mín mér eina bleika rós enn sem mér fannst tákn­ræn og var til­ætluð hon­um,“ seg­ir hún. 

Hulda er ánægð að Hjalti skyldi fá sinn eigin afmælisdag.
Hulda er ánægð að Hjalti skyldi fá sinn eig­in af­mæl­is­dag.

„Á viss­an hátt á maður sig ekki leng­ur sjálf­ur“

Spurð hvernig lífið hafi breyst eft­ir að Hjalti kom í heim­inn seg­ir hún að á sama tíma og allt hafi breyst hafi ekk­ert breyst. „Lífið fékk ann­an til­gang eft­ir að ég átti son minn. Þarna var kom­inn lít­ill ein­stak­ling­ur sem treysti full­kom­lega á mann og var al­ger­lega háður manni frá A til Ö. Lífið krefst meira skipu­lags og hann ræður öllu því það miðast allt við hann. Á viss­an hátt, þá á maður sig ekki leng­ur sjálf­ur og maður hef­ur lít­inn tíma fyr­ir sjálf­an sig,“ út­skýr­ir hún. 

Birg­ir vinn­ur er­lend­is og seg­ir Hulda mik­inn mun vera á því að vera einn með barn en að hafa ann­an aðila með sér. „Birg­ir er besti pabbi í heimi og svo er ég líka mjög hepp­in að búa í sama húsi og mamma mín sem er alltaf boðin og búin til að hjálpa til. Ég skal samt al­veg viður­kenna að stund­um þegar ég er á haus heima, hef lítið sofið um nótt­ina, varið stærst­um hluta dags í brjósta­gjöf og er búin að reyna að koma ein­hverj­um ein­um hlut í verk all­an dag­inn, þá horfi ég löng­un­ar­aug­um á næt­ur­svefn­inn sem Birg­ir fær úti og all­an tím­ann sem hann hef­ur fyr­ir sjálf­an sig til að fara í gokart, hitta vini sína, fara á söfn og sýn­ing­ar eða gera það sem hann lyst­ir, “ seg­ir Hulda.

Feðgarnir alsælir í sólinni.
Feðgarn­ir al­sæl­ir í sól­inni.

„Það skrítna er samt að þó ég geti kannski pirrað mig á því í smá­stund, þá myndi ég aldrei skipta við hann þegar á hólm­inn væri komið. Það er líka mjög skrítið að ef ég fer t.d. ein út í búð þá sakna ég Hjalta strax og vildi helst hafa hann hjá mér öll­um stund­um, eins krefj­andi og það get­ur verið,“ bæt­ir hún við. 

„Að vera mamma er líklega eitt stærsta verkefni sem maður …
„Að vera mamma er lík­lega eitt stærsta verk­efni sem maður tek­ur sér fyr­ir hend­ur og maður er á sól­ar­hrings­vakt alla daga.“

Þakk­lát fyr­ir brjósta­gjöf­ina

Hulda seg­ir það hafa komið sér á óvart hve lengi hægt er að halda sér gang­andi án þess að fá al­menni­leg­an svefn, en í byrj­un þurftu þau að vekja Hjalta á þriggja tíma fresti til að gefa hon­um brjóst.

Hjalti er enn á brjósti og von­ar Hulda að hún geti haldið brjósta­gjöf­inni áfram þar til hann verður tveggja ára. „Brjósta­gjöf­in gekk strax mjög vel og ég er hepp­in að það hafa eng­in vanda­mál komið upp í tengsl­um við hana eins og ger­ist stund­um. Ég elska að hafa son minn á brjósti og það er mögnuð teng­ing en eins og flest­ir for­eldr­ar vita ef­laust þá fer drjúg­ur tími af deg­in­um hjá mæðrum í að hafa börn sín á brjósti. Ég pældi ekki mikið í því áður en hann fædd­ist svo kannski má segja að það hafi líka komið mér á óvart hve tíma­frek brjósta­gjöf er. Hann fer á brjóst mörg­um sinn­um á sól­ar­hring og ég geri auðvitað svo til ekk­ert annað á meðan,“ út­skýr­ir hún. 

Þótt Hulda sé afar þakklát fyrir vel lukkaða brjóstagjöf viðurkennir …
Þótt Hulda sé afar þakk­lát fyr­ir vel lukkaða brjósta­gjöf viður­kenn­ir hún að það geti verið tíma­frekt að gefa brjóst.

„Móður­hlut­verkið er besta hlut­verk í heimi og ég elska son minn meira en allt. Ég myndi gera hvað sem er fyr­ir hann og það er kannski ein­mitt það sem er mest krefj­andi. Það er fullt starf að vera með lítið kríli; ég er búin að vera á dag- og næt­ur­vakt á hverj­um degi síðan að hann fædd­ist í janú­ar. Þetta get­ur al­veg verið erfitt en maður gleym­ir því um leið og hann bros­ir sínu blíðasta. Það jafn­ast ekk­ert á við hlát­ur­inn hans og gleðina sem fylg­ir hon­um. Það er end­ur­nær­andi að hafa hann í fang­inu og finna fyr­ir hlýj­unni, fylgj­ast með hon­um þrosk­ast, sjá hann upp­götva heim­inn og læra eitt­hvað nýtt,“ seg­ir Hulda.

„Þetta er stund­um smá limbó á milli þess að vilja stund­um fáör­lít­inn tíma fyr­ir sig en samt ekki missa af neinu hjá hon­um. Ég fæ al­veg „mamm­visku­bit“ ef ég þarf að skjót­ast eitt­hvað og tek hann ekki með,“ bæt­ir hún við. 

Hulda segir móðurhlutverkið vera það besta í heimi.
Hulda seg­ir móður­hlut­verkið vera það besta í heimi.
mbl.is