Hin 39 ára gamla leikkona Yvonne Orji hefur aldrei stundað kynlíf, en hún vill bíða með það þar til hún hefur fundið draumaprinsinn og gengið í hjónaband.

Orji greindi frá þessu í hlaðvarpsþætti Dear Chelsea, en klippa úr þættinum hefur farið eins og eldur í sinu á netheimum undanfarna daga.
„Ertu enn hrein mey?“ spurðu Chelse Handler, þáttastjórnandi hlaðvarpsins, og Orji staðfesti það. „Guð minn góður, ég elska þetta. Þú ert frumlegasti gestur sem við höfum fengið hingað. Og hvað ert þú, 39 ára?“ sagði Handler í kjölfarið.
Orji grínaðist með það að hún hefði áhyggjur af manninum sem á endanum yrði ástmaður hennar. „Fólk segir: Ó, Yvonne, biddu fyrir honum, hver sem hann er,“ sagði hún.