Barnavöruverslunin MiniPlay.is er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á fallegum og góðum barnavörum sem hannaðar eru með það fyrir augum að auka sköpunarkraft og ímyndunarafl yngri kynslóðarinnar.
Barnavöruverslunin MiniPlay.is er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á fallegum og góðum barnavörum sem hannaðar eru með það fyrir augum að auka sköpunarkraft og ímyndunarafl yngri kynslóðarinnar.
Barnavöruverslunin MiniPlay.is er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á fallegum og góðum barnavörum sem hannaðar eru með það fyrir augum að auka sköpunarkraft og ímyndunarafl yngri kynslóðarinnar.
Verslun MiniPlay.is er staðsett í Tónahvarf 10 í Kópavogi og þar er að finna fjölbreytt úrval af barnavörum frá vönduðum vörumerkjum sem tryggja bestu möguleg gæði fyrir börnin.
„Þær barnavörur og leikföng sem við hjá MiniPlay.is bjóðum upp á ýta undir opinn leik hjá börnum þannig að þau nýta sköpunarkraftinn sinn í gegnum leik. Þessar vörur geta meðal annars stuðlað að auknu sjálfstrausti, hreyfifærni, jafnvægi og fleira hjá börnum,“ segir Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir, markaðsstjóri MiniPlay.is.
Að sögn Guðbjargar hefur verslunin vaxið mikið undanfarið og úrvalið aukist. „Í dag erum við með fjölbreytt úrval af barnavörum, leikföngum og gjafavöru fyrir börn á öllum aldri,“ segir hún.
„Við erum sífellt að bæta við okkur nýjum vörum og vörumerkjum. Einnig eru vörumerkin sem við erum að vinna með sífellt að auka vöruúrvalið og koma með spennandi nýjungar.“
Hjá MiniPlay.is er rík áhersla lögð á að bjóða upp á vandað vöruúrval frá vörumerkjum sem hafa umhverfissjónarmið til hliðsjónar við vöruframleiðslu. Ber helst að nefna vörumerki á borð við Katehaa og Wigiwama sem hvort tveggja eru framleidd í Lettlandi þar sem ströngustu gæðaskilyrðum er framfylgt.
„Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af vörum frá nokkrum vörumerkjum sem framleiða vörur sínar úr hágæða efni með tilliti til umhverfisins og eru án allra eitur- og ofnæmisvaldandi efna,“ útskýrir Guðbjörg.
Barnavörurnar frá MiniPlay.is eru sérlega skapandi og sniðugar en þær eru ekki síður smekklegar inn í barnaherbergið. Samkvæmt Guðbjörgu eru vinsælustu vörur verslunarinnar trampólín, klifurgrindur, baunapúðar og hlaupahjól. Allar þessar vörur eiga það sameiginlegt að auka þroskafærni barna og vera skrautprýði barnaherbergja í senn.
„Fyrsta vörumerkið sem við tókum inn er Katehaa sem framleiðir fallegar klifurgrindur úr gegnheilum við fyrir börn. Allt er framleitt í Lettlandi og uppfyllir ströngustu öryggis- og gæðastaðla,“ bendir hún á og segir vörumerkið Wigiwama hafa komið í kjölfarið.
„Svo tókum við Wigiwama inn en það er einnig frá Lettlandi og framleiðir einstaklega fallega baunapúða og fleira fyrir börn. Fyrsta sending seldist upp hjá okkur á mettíma og fórum við í framhaldi af því að bæta við öðrum skemmtilegum vörumerkjum og auka vöruúrvalið jafnt og þétt.“
Markmið MiniPlay.is er að virkja sköpunargleði og ímyndunarafl barna, viðhalda forvitni, stuðla að bættu sjálfstrausti og auka þroskafærni þeirra með því að bjóða upp á gott úrval barnavara og leikfanga sem búa yfir þessum eiginleikum.
Vörurnar eru vinsælar gjafir og henta við öll tilefni, enda fátt jafn skemmtilegt og að gefa nytsamlegar og nýstárlegar gjafir sem gleðja augað og efla sköpunargáfuna á sama tíma.
„Hjá okkur færðu vörur sem munu hitta í mark hjá barninu,“ segir Guðbjörg.
Smelltu hér til að skoða vöruúrvalið í vefverslun MiniPlay.is - hægt er að panta allar vörur í gegnum vefverslun og fá heimsendingu um allt land.
Einnig tekur starfsfólk MiniPlay.is vel á móti þér í Tónahvarfi 10 í Kópavogi - kíktu við!