Bandaríska söngkonan Bebe Rexha sló rækilega í gegn á Instagram um helgina þegar hún birti sjóðheitar ljósmyndir af sér teknar á hóteli í Singapúr, en söngkonan átti frídag frá tónleikaferðalagi sínu.

Á myndunum klæddist Rexha svörtum sundbol og sást stilla sér upp víðs vegar í kringum hótelsundlaugina, sem virðist staðsett á þaki hótelsins.
Fylgjendur söngstjörnunnar, sem eru tæplega 11 milljónir talsins, voru yfir sig hrifnir af myndunum og ánægðir með öryggið sem draup af Rexha, en hún er ötul talskona jákvæðrar líkamsímyndar og líður vel í eigin skinni.
Árið hefur verið upp og ofan hjá söngkonunni, en Rexha lenti í miður skemmtilegri upplifun á tónleikum sínum í New York-borg í júní. Var síma grýtt í andlitið á henni og féll hún í kjölfarið niður á sviðið. Söngkonan greindi einnig frá sambandsslitum sínum og Keyan Sayfari á tónleikum sínum í ágúst.