15 milljóna styrkur fyrir íslensk-pólska orðabók

Íslenska | 16. nóvember 2023

15 milljóna styrkur fyrir íslensk-pólska orðabók

Vinna við íslensk-pólska veforðabók stendur sem hæst hjá Árnastofnun og hafa 26.000 orð þegar verið þýdd úr íslensku á pólsku. Verkið er nú um það bil hálfnað. Í tilefni af Degi íslenskrar tungu hefur félags- og vinnumarkaðsráðherra veitt Árnastofnun 15 milljóna króna styrk til áframhaldandi vinnu við verkefnið.

15 milljóna styrkur fyrir íslensk-pólska orðabók

Íslenska | 16. nóvember 2023

Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og …
Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Vinna við íslensk-pólska veforðabók stendur sem hæst hjá Árnastofnun og hafa 26.000 orð þegar verið þýdd úr íslensku á pólsku. Verkið er nú um það bil hálfnað. Í tilefni af Degi íslenskrar tungu hefur félags- og vinnumarkaðsráðherra veitt Árnastofnun 15 milljóna króna styrk til áframhaldandi vinnu við verkefnið.

Vinna við íslensk-pólska veforðabók stendur sem hæst hjá Árnastofnun og hafa 26.000 orð þegar verið þýdd úr íslensku á pólsku. Verkið er nú um það bil hálfnað. Í tilefni af Degi íslenskrar tungu hefur félags- og vinnumarkaðsráðherra veitt Árnastofnun 15 milljóna króna styrk til áframhaldandi vinnu við verkefnið.

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Stofnunin hlaut einnig styrk í fyrra og gerði sá stuðningur stofnuninni kleift að ráða þýðendur til verksins. 

Í tilkynningunni segir að sárlega hafi vantað veforðabók sem þessa fyrir þann stóra hóp Pólverja sem sest hefur að hér á landi. Markmiðið sé því að styðja pólska innflytjendur til íslenskunáms og auðvelda þeim þannig inngildingu í íslenskt samfélag með því að bjóða upp á gjaldfrjálst, rafrænt og aðgengilegt hjálpartæki sem einnig myndu nýtast nemendum í skólum.

Orðabókin nýtist 23.000 Pólverjum sem búa á Íslandi

Að þýðingunni vinna Stanislaw Bartoszek, verkefnisstjóri pólska markmálsins hjá Árnastofnun, Aleksandra Maria Cieślińska, Emilia Mlynska og Miroslaw Ólafur Ambroziak sem öll hafa pólsku að móðurmáli og eru menntuð í íslensku við Háskóla Íslands. Þórdís Úlfarsdóttir er aðalritstjóri og Halldóra Jónsdóttir verkefnisstjóri.

Í tilkynningunni er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags og vinnumarkaðsráðherra, sem segir að veforðabókin muni nýtast þeim ríflega 23.000 Pólverjum sem búa hér á landi.

Þá er einnig haft á eftir Guðrúnu Nordal, forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, sem segir að Árnastofnun sé himinlifandi yfir því að fá þennan styrk.

mbl.is