Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel snýr aftur sem kynnir Óskarsverðlaunanna á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnendum Óskarsakademíunnar.

„Við erum himinlifandi með að Jimmy ætli að snúa aftur sem kynnir Óskarsverðlaunanna og einnig að eiginkona hans, Molly Kimmel, komi aftur sem aðalframleiðandi hátíðarinnar,“ sögðu þau Bill Kramer, forstjóri akademíunnar og Janet Yang, forseti akademíunnar. „Við erum innilega þakklát Jimmy, Molly og þeirra öfluga samstarfshópi fyrir að fara í þetta heljarinnar ferðalag með okkur eina ferðina enn.
Þetta verður í fjórða sinn sem Kimmel stígur á svið í Dolby-höllinni sem kynnir, en grínistinn steig fyrst á svið árið 2017 þegar heljarinnar mistök urðu við afhendingu verðlaunanna fyrir bestu kvikmyndina. Myndin La La Land var tilkynnt sem sigurvegari í stað Moonlight. Kimmel sneri þó aftur 2018 og 2023.