Tónlistarmaðurinn og sjarmurinn Harry Styles kom aðdáendum sínum verulega á óvart í vikunni þegar hann rakaði af sér hárið. Aðdáendur hans virðast hafa mikla skoðun á nýja útlitinu og eru margir hverjir alls ekki sáttir.

Styles frumsýndi nýja lúkkið í tilkynningu frá snyrtivörumerki hans Pleasing á Instagram. „Stofnandinn okkar, Harry Styles, fagnar kynningu á Pleasing ilmum með vinum í Lundúnum. Nóvember, 2023,“ stóð í myndatextanum, en það vakti mikla athygli að slökkt hafði verið á athugasemdum.
Þrátt fyrir það voru aðdáendur hans ekki lengi að segja skoðun sína á nýja lúkkinu. „Ég bókstaflega titra, vinsamlegast eyðið þessu,“ tísti einn á meðan annar krafðist þess að hann myndi taka nýja lúkkið til baka.
Þótt margir hafi verið ósáttir við ákvörðun Styles að raka af sér hárið voru þó nokkrir heillaðir af nýja lúkkinu. „Hann lítur allt öðruvísi út en hann er flottur,“ tísti einn á meðan annar skrifaði í hástöfum: „ÉG VISSI AÐ ÞÚ MYNDIR ENN VERA HEITUR.“