Ekki hefur verið ákveðið hvaða dómari tekur við af Daða Kristjánssyni, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, eftir að Landsréttur mat hann vanhæfan til að dæma í hryðjuverkamálinu svokallaða.

Spurð segir Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, að verið sé að skoða hver taki við af honum.
„Ég geri ráð fyrir því að þetta gerist frekar fljótt en við gefum okkur smá tíma til að skoða málið,” segir Ingibjörg.
Landsréttur úrskurðaði þann 23. október að héraðsdómi bæri að taka hryðjuverkamálið til efnislegrar meðferðar og krafðist þá Karl Ingi Vilbergsson saksóknari þess að Daði myndi víkja frá í málinu.
Krafan var sett fram vegna ummæla dómarans í úrskurði frá því í október þar sem málinu var vísað frá.
Saksóknari skaut málinu til Landsréttar sem hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að Daði sé vanhæfur til að dæma í málinu.