Undanfarna daga hefur Love Island-stjarnan Molly-Mae Hague notið lífsins til hins ýtrasta í sannkölluðu lúxusfríi í ítölsku Ölpunum.

Instagram-reikningur Hague fylltist af töfrandi vetrarmyndum úr ferðinni í vikunni, en eins og vanalega var Hague með tískuna alveg á hreinu og gaf ófáum aðdáendum tískuinnblástur fyrir komandi vetur.
Meðal þess sem Hague tók með sér í Alpana var þykk kápa, góð úlpa, hlý rúllukragapeysa, kuldaskór og stígvél.
Það vantaði svo sannarlega ekki upp á útsýnið í ferðinni, en á myndum hennar má sjá ótrúlegt útsýni yfir snæviþakta tindana.