Íslenski tónlistarmaðurinn Laufey Lín Jónsdóttir, sem er 24 ára, er um það bil að sigra heiminn þessa dagana. Velgengni hennar á djasstónlistarsviðinu hefur farið fram úr björtustu vonum.
Íslenski tónlistarmaðurinn Laufey Lín Jónsdóttir, sem er 24 ára, er um það bil að sigra heiminn þessa dagana. Velgengni hennar á djasstónlistarsviðinu hefur farið fram úr björtustu vonum.
Íslenski tónlistarmaðurinn Laufey Lín Jónsdóttir, sem er 24 ára, er um það bil að sigra heiminn þessa dagana. Velgengni hennar á djasstónlistarsviðinu hefur farið fram úr björtustu vonum.
Í fyrra var hún einn mest streymdi djasstónlistarmaðurinn á Spotify. Nú hefur franska tískuhúsið Chanel hafið samstarf við Laufeyju en hún klæddist fatnaði frá þeim á dögunum og mun gera áfram.
„ Ég hef bæði klæðst Chanel á tónleikum í LA og Peking. Vonandi heldur þetta áfram. Ég er mikill aðdáandi Chanel og skemmtilegt að vera með fót í tískuheiminum,“ segir Laufey í samtali við Eddu Gunnlaugsdóttur blaðamann á mbl.is og K100.
Á ljósmyndum sem Smartland fékk sent frá Chanel í París sést glögglega hvað fötin klæða Laufeyju vel. Þau eru klassískt og smart og án tilgerðar.
Það hefur alltaf verið ævintýrablær yfir franska tískuhúsinu Chanel sem Gabrielle Chanel, eða Coco eins og hún var kölluð, stofnaði 1913. Hún hugsaði öðruvísi en samtímakonur hennar, en í stað þess að leggja áherslu á hjónaband og barneignir ákvað hún að fara aðra leið.
Það eru eflaust margar ástæður fyrir því en ein þeirra er kannski sú að hún missti mömmu sína þegar hún var lítil og pabbi hennar treysti sér ekki til að ala hana upp einn síns liðs og fór með hana á munaðarleysingjahæli. Hún átti því ekki heilbrigðar fyrirmyndir um hamingjuríkt fjölskyldulíf og hjónaband. Þessi hegðun pabba hennar hefur kannski ekki aukið trú hennar á karldýr heimsins.
„Ég horfði á tilnefningarnar með Júníu systur minni og umboðsmanninum mínum í Texas. Það voru komnar tilnefningar fyrir nokkra flokka svo við héldum að þetta væri búið. Allt í einu hoppar umboðsmaður minn upp og segist halda að ég hafi fengið tilnefningu. Við vorum hins vegar ekki viss strax þar sem stundin var liðin og myndbandið hélt áfram. Við tókum nokkrar mínútur í að finna út úr þessu og fengum svo rétt myndband upp á sjónvarpið. Þá sá ég það raunverulega og ég trúði þessu ekki. Að sjá nafnið mitt þarna, ég hélt að þetta væri plat,“ segir Laufey, augljóslega í skýjunum með fréttirnar.
Laufey hlaut nýverið Grammy-tilnefningu fyrir plötuna sína Bewitched í flokknum Traditional Pop Vocal Album og segist enn eiga erfitt með að trúa því.
„Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig. Ég bjó til þetta verkefni, plötuna Bewitched, í herberginu mínu í heimsfaraldrinum og hef verið að vinna að þessu síðustu þrjú ár. Sérstaklega að vera tilnefnd í þessum flokki, sem er djassflokkur þannig séð með fáu ungu fólki, er mér mjög mikill heiður. Allir aðrir sem eru tilnefndir eru mun eldri en ég. Í lok dags eru Grammy-verðlaun rosalegur heiður.“