Eva Mattadóttir, markþjálfi, barnabókahöfundur og hlaðvarpsstjórnandi, er búin að vera án áfengis í tíu ár. Hún skrifaði einlæga færslu um áfangann á Instagram.

„Í dag hef ég verið edrú í 10 ár. Sennilega það nettasta sem ég hef afrekað. Edrúmennska er daglegt djobb for life, vissulega. En alltaf þess virði. Það er ekkert gaman að vera í slag við sjálfan sig og tilveruna, friðurinn er einhvernvegin svo miklu meira djúsí dæmi. Ég sé það núna.
Töst fyrir 10 árum, en eiginlega bara deginum í dag. Því ég tek víst bara einn dag í einu. Annað er yfirþyrmandi fyrir alkahausinn, og flest okkar líka held ég sveimérþá.
Ég veit að mörg eru með sína eigin skoðun á alkóhólisma og fíknisjúkdómum, en ég vildi óska þess að fleiri vissu raunverulega um hvað málið snýst. Ég gaf mér það í 10 ára afmælisgjöf opna vel á þessa umræðu í Norminu okkar allra – og ég hlakka til að setja þann þátt í loftið 1. des,“ skrifaði Eva í færslu sinni.