Úkraínsk stjórnvöld segja árás sína á Rússneskar herstöðvar austan við Dnípró-ána, nokkrum dögum eftir að Rússar viðurkenndu að Úkraínumenn hefðu náð fótfestu á svæðinu, hafa heppnast vel.

Sóknin myndi marka stóran áfanga fyrir úkraínska herinn. Gagnsókn Úkraínumanna hefur ekki skilað miklum árangri í Úkraínustríðinu, sem hefur nú staðið yfir í 21 mánuð.
„Úkraínsku varnarsveitirnar framkvæmdu nokkrar velheppnaðar hernaðaraðgerðir á vinstri bakka Dnípro-árnar,“ segir Úkraínuher í tilkynningu. Stjórnvöld í Kænugarði segja að herinn hafi náð fótfestu á mörgum stöðum austan megin við ána.
Rússlandsher og Úkraínuher hafa hvor verið sín megin við Dnípró-ána frá því að Rússland dró sig úr vesturhluta Kerson í mánuðinum, sem var síðasta stóra landfræðilega breytingin í stríðinu. Hvorug hliðin hefur náð miklum árangri í stríðinu síðan þá.
Rússneska varnarmálaráðuneytið virðist samt sem áður neita fullyrðingum sem heyrast frá Kænugarði.
„Óvinurinn [er] hægra [vestan] megin við Dnípró,“ segir ráðuneytið í yfirlýsingu, þar sem einnig er fullyrt að það hafi komið í veg fyrir atlögur Úkraínumanna á landi, en nefnir ekki hvar.
Báðar hliðar segja mannfallið meira hjá óvininum.