Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, fagnar því í dag að hafa verið edrú í sjö ár.

Í tilefni dagsins birti Herra Hnetusmjör færslu á Instagram. „Í dag er ég búinn að vera edrú í 7 ár. Lífið er bull,“ skrifaði hann við mynd af sér skælbrosandi.
Herra Hnetusmjör hefur slegið í gegn í íslenskri tónlistarsenu síðustu ár. Hann hefur einnig komið fram í sjónvarpi sem dómari í íslenska Idolinu og núna nýverið í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum um strákabandið IceGuys sem Herra Hnetusmjör er meðlimur í.