Myndskeið hefur gengið á milli manna á veraldarvefnum af hópi ferðamanna sem komst í hann krappan í Reynisfjöru. Hefur það meðal annars verið birt á samfélagsmiðlinum Reddit.

Í lok síðasta árs lauk uppsetningu nýrra skilta við fjöruna, sem getur verið lífshættuleg vegna lævísra ólagsalda.
Eins og sjá má á myndskeiðinu virka öldurnar saklausar en svo bókstaflega læðist ólagsalda að ferðamönnunum þremur.
Tveir þeirra falla við en annar kemst sem betur fer á fætur fljótt og nær að grípa í hinn og styðja á fætur áður en aldan hrífur hann með sér á haf út.
Ólagsöldurnar eru mun stærri en þær sem koma að ströndinni á milli þeirra og mislangur tími getur liðið á milli ólagsalda.
Stundum koma þær hver á eftir annarri en stundum geta margar smærri og hættuminni öldur komið á milli tveggja ólagsalda.
Ólagsöldurnar geta risið mjög hratt og skollið á ströndinni með nær engum fyrirvara, gripið fólk og sogað á haf út.
Ný skilti og viðvörunarkerfi virðast þó ekki alltaf hafa mikinn fælingarmátt á ferðamenn. Ekki eru allir jafn heppnir og hollenski ljósmyndarinn Brendan de Clercq en aldan skilaði honum á land jafn harðan og hún tók hann á haf út á köldum febrúardegi.