Þýsk stjórnvöld hafa ákveðið að verja 1,3 milljörðum evra til kaupa á búnaði fyrir úkraínska herinn sem á enn í stríði við innrásarher Rússa. Meðal þess sem á að fjárfesta í eru loftvarnakerfi af gerðinni IRIS T-SLM og skotfæri fyrir stórskotalið. Upphæðin nemur um 198 milljörðum íslenskra kr.

Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, greindi frá þessu í dag eftir að hafa átt í viðræðum við Rustem Umerov, varnarmálaráðherra Úkraínu, í Kænugarði. Þetta var önnur heimsókn hans til Úkraínu, en hann tók við sem ráðherra í upphafi árs.
Af þeim þjóðum sem hafa útvegað Úkraínu mest af hergögnum og búnaði þá situr Þýskaland í öðru sæti.
Úkraínumenn hafa sótt stíft eftir að fá IRIS-T loftvarnakerfi sem nýta má til að skjóta niður rússneska dróna og flugskeyti.