Kynna þorskrannsóknir fyrir opnum dyrum

Hafrannsóknastofnun | 22. nóvember 2023

Kynna þorskrannsóknir fyrir opnum dyrum

Þorskurinn verður í aðalhlutverki á opnum fundi Hafrannsóknastofnunar um þorskrannsóknir á morgun. Þar verða kynntar niðurstöður úr tveim verkefnum, annars vegar átaksverkefni í þorskrannsóknum og hins vegar verkefnið „Sameinuð við þorsk: margbreytileiki þorskveiða og nýting þeirra við fiskveiðistjórnun“.

Kynna þorskrannsóknir fyrir opnum dyrum

Hafrannsóknastofnun | 22. nóvember 2023

Frá stofnmælingu botsjávartegunda haustið 2022. Rannsóknir á þorski verða ræddar …
Frá stofnmælingu botsjávartegunda haustið 2022. Rannsóknir á þorski verða ræddar á málstofu Hafrannsóknastofnunar á morgun. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir

Þorskurinn verður í aðalhlutverki á opnum fundi Hafrannsóknastofnunar um þorskrannsóknir á morgun. Þar verða kynntar niðurstöður úr tveim verkefnum, annars vegar átaksverkefni í þorskrannsóknum og hins vegar verkefnið „Sameinuð við þorsk: margbreytileiki þorskveiða og nýting þeirra við fiskveiðistjórnun“.

Þorskurinn verður í aðalhlutverki á opnum fundi Hafrannsóknastofnunar um þorskrannsóknir á morgun. Þar verða kynntar niðurstöður úr tveim verkefnum, annars vegar átaksverkefni í þorskrannsóknum og hins vegar verkefnið „Sameinuð við þorsk: margbreytileiki þorskveiða og nýting þeirra við fiskveiðistjórnun“.

Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að fundurinn verður í húsakynnum stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og er hann opinn öllum.

Fjallað verður meðal annars um hlutfall þorskhrygna sem sleppir úr hrygningu við Ísland, uppeldisstöðvar þorskseiða á Vestfjörðum og heildarát og sjálfrán þorsks við Ísland svo eitthvað sé nefnt.

mbl.is