Hafsteinn og Karitas fagna 20 árum saman

Allt fyrir ástina | 23. nóvember 2023

Hafsteinn og Karitas fagna 20 árum saman

Hjónin og hönnunartvíeykið Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir fögnuðu því í gær að hafa verið saman í 20 ár. 

Hafsteinn og Karitas fagna 20 árum saman

Allt fyrir ástina | 23. nóvember 2023

HAF-hjónin, þau Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir, hafa verið saman …
HAF-hjónin, þau Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir, hafa verið saman í 20 ár. Ljósmynd/Aldís Páls

Hjónin og hönnunartvíeykið Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir fögnuðu því í gær að hafa verið saman í 20 ár. 

Hjónin og hönnunartvíeykið Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir fögnuðu því í gær að hafa verið saman í 20 ár. 

Í tilefni dagsins birti Karitas fallega færslu á Instagram með skemmtilegri mynd sem tekin var af systur Karitasa, Stellu, fyrir 20 árum síðan. 

„20 ár saman og alltaf jafn gaman. Ekki leiðinlegt að fatta / muna það í góðra vinahóði - Þú ert BESTUR elsku Hafsteinn,“ skrifaði hún við myndina. 

Hafa verið gift í 12 ár

Hafsteinn og Karitas hafa verið áberandi í hönnunarsenunni hér á landi síðustu ár og eru einnig eigendur HAF Store og HAF Studio. Undanfarin ár hafa hjónin hannað ýmsa veitingastaði, verslanir og heimili auk þess að gera upp eigin íbúðir og hús.

Í sumar fögnuðu hjónin 12 ára brúðkaupsafmæli sínu í garðinum við nýja húsið þeirra, en þau festu nýverið kaup á 306 fm einbýlishúsi við Fjölnisvef í Reykjavík og eru ófáir sem bíða spenntir eftir því að fylgjast með hjónunum gera húsið að sínu.

Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!

mbl.is