Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir tjaldaði öllu til í gær þegar besti vinur hennar, hundurinn Bruce Wayne, átti afmæli. Bruce er af tegundinni Tibetian Spaniel og varð í gær 11 ára.

Sunneva hélt glæsilegt afmælisboð í tilefni dagsins og dekraði almennilega við Bruce. Þau klæddu sig bæði upp fyrir veisluna, en Bruce skartaði ofurkrúttlegri silfurlitaðri slaufu í tilefni dagsins sem var í stíl við blöðrurnar og afmælishattana.
Bruce er vel kunnugur fylgjendum Sunnevu enda hefur hann verið stór partur af lífi hennar og sést oft á myndum og í myndböndum sem hún birtir.
Það var að sjálfsögðu boðið upp á afmælisköku og kerti í veislunni, en Bruce fékk þó sína eigin köku úr lifrapylsu og rjóma. Af myndum að dæma virðist Bruce hafa verið hæstánægður með vel heppnaða afmælisveislu, en rjóminn virðist hafa hitt beint í mark.
Sunneva birti myndaröð frá deginum á Instagram með yfirskriftinni: „Besti vinur minn í öllum heiminum í 11 ár í dag. Til hamingju með afmælið Bruce Wayne, elska þig alltaf.“