Nú styttist óðum í aðventuna og eru margir því eflaust farnir að huga að jólaskreytingum. Í augum margra eru aðventustjakar eða -kransar ómissandi partur af aðventunni og því ekki seinna vænna að fara yfir það flottasta í ár.

Stjakarnir sem hér má sjá eru fallegir, klassískir og tímalausir. Þeir eiga það allir sameiginlegt að geta verið mikið heimilisprýði allt árið um kring og því óhætt að segja að fagurfærði og notagildi séu í fyrirrúmi. Að undanförnu hafa látlausir stjakar og kransar verið áberandi á íslenskum heimilum þar sem hlýleg litapalletta er notuð ásamt efnivið og áferð úr náttúrunni.
Það er svo auðvelt að setja kertastjakana í enn jólalegri búning með því að nota fallegt skraut, en hér er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða för. Grænar greinar eru klassískar og gera mikið fyrir aðventukransinn, en þær er hægt að nota á ýmsan máta til að poppa upp stjakana. Þá er einnig fallegt að nota köngla, þurrkuð ber, strá og blóm svo eitthvað sé nefnt.
Úrvalið af fallegum kertum hefur sjaldan verið meira en í dag, en þau er hægt að fá í öllum stærðum, gerðum og litum. Hvítir, rauðir og grænir litatónar hitta alltaf í mark yfir hátíðirnar, en það er einnig hægt að nota aðra liti eins og silfur, gull eða brons