Tónlistarmaðurinn og leikarinn Jóhann Kristófer Stefánsson, betur þekktur sem Joey Christ, hefur sett sjarmerandi íbúð sína við Skeggjagötu í Reykjavík á sölu.

Eignin telur 78 fm og er sérhæð í þríbýlishúsi sem reist var árið 1939. Björt og rúmgóð stofa er opin að hluta með eldhúsi, en þar grípur hinn formfagri Wassily-hægindastóll augað samstundis. Stólinn þykir mikið heimilisprýði, enda er hann tímalaus og klassísk hönnun eftir Marcel Breuer frá árinu 1925.
Í eldhúsi er hvít stílhrein innrétting með fínu skápaplássi, en á milli neðri og efri skápa má sjá afar fallegar bláar flísar í „subway-stíl“ sem gefa eldhúsinu bæði sjarma og karakter.
Eignin státar af tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi, þar af er rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskápum. Þar að auki er stór og gróinn sameiginlegur garður til suðurs.