Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur og heilsumarkþjálfi flutti til Lúxemborgar 2007. Þar kviknaði áhuginn á heilsutengdum málefnum. Hún sökkti sér ofan í hráfæði og segist hafa prufað allar tegundir að mataræði. Í heilsuþáttum sem unnir eru í samvinnu við Feel Iceland segir hún frá því að núna borði hún allt en sé þó alltaf með hollustu í forgrunni. Jana, sem rekur vefinn, jana.is, segist drekka mikið af heimagerðum engiferskotum til þess að passa upp á að fá ekki flensur.

„Það er mikilvægt að eiga alltaf engiferskot í ísskápnum. Það er hreinsandi og bólgueyðandi engiferið, geggjað í öllum þessum pestum.“
Þú verður aldrei veik?
„Mjög sjaldan.“
Engifer og kollagen skot
Aðferð:
Allt sett í blandara og blandað mjög vel saman.
„Flestum finnst gott að sigta mesta hratið frá og geyma þannig í flösku inni í ísskáp. Ég mæli með því að frysta hratið og nota í þeytinga eða setja í tegrisju og hella heitu vatni yfir því þá getur fólk fengið ferskt engiferte,“ segir Jana.
Hristið flöskuna vel og fáið ykkur skot a morgnana.
Geymist í allt að viku í ísskáp.