Meirihluti óánægður með heilbrigðisþjónustu

Heilsa og mataræði | 1. desember 2023

Meirihluti óánægður með heilbrigðisþjónustu

Meirihluta Íslendinga finnst illa staðið að opinberri heilbrigðisþjónustu hér á landi ef marka má netkönnun Prósents sem lögð var fyrir nýlega.

Meirihluti óánægður með heilbrigðisþjónustu

Heilsa og mataræði | 1. desember 2023

Mest ánægja með opinbera heilbrigðisþjónustu er meðal elsta aldurshópsins en …
Mest ánægja með opinbera heilbrigðisþjónustu er meðal elsta aldurshópsins en tæplega 41% þeirra sem eru 65 ára og eldri finnst staðið vel að henni. Minnst ánægja er meðal yngsta aldurshópsins en tæplega 20% þeirra sem eru á aldrinum 18-24 ára finnst staðið vel að opinberri heilbrigðisþjónustu. Ljósmynd/Colourbox

Meiri­hluta Íslend­inga finnst illa staðið að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu hér á landi ef marka má net­könn­un Pró­sents sem lögð var fyr­ir ný­lega.

Meiri­hluta Íslend­inga finnst illa staðið að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu hér á landi ef marka má net­könn­un Pró­sents sem lögð var fyr­ir ný­lega.

Könn­un­in var lögð fyr­ir 1.800 ein­stak­linga og um helm­ing­ur þeirra svaraði.

Tveggja spurn­inga var spurt.

  • Á heild­ina litið hversu vel eða illa finnst þér staðið að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu á Íslandi?
  • Finnst þér að op­in­ber heil­brigðisþjón­usta á Íslandi hafi þró­ast til hins betra eða til hins verra á síðastliðnum 10 árum?

Tæp­lega 54% finnst illa vera staðið að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu, um 18% svar­ar hvorki né og 28% finnst vera staðið vel að henni.

Mynd/​Pró­sent

Mest ánægja með op­in­bera heil­brigðisþjón­ustu er meðal elsta ald­urs­hóps­ins en tæp­lega 41% þeirra sem eru 65 ára og eldri finnst staðið vel að henni. Minnst ánægja er meðal yngsta ald­urs­hóps­ins en tæp­lega 20% þeirra sem eru á aldr­in­um 18-24 ára finnst staðið vel að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu.

Að sama skapi finnst rúm­lega 60% þeirra sem til­heyra yngsta ald­urs­hópn­um illa staðið að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu en rúm­lega 43% þeirra sem til­heyra elsta ald­urs­hópn­um.

Kon­ur láta verr að op­in­berri heil­brigðisþjón­ustu en karl­ar. Tæp­lega 58% þeirra finnst illa staðið að henni en rúm­lega 50% karla.

Mynd/​Pró­sent
Mynd/​Pró­sent

Tæp­lega 63% þjóðar­inn­ar finnst op­in­ber heil­brigðisþjón­usta hafa þró­ast til hins verra, 17% finnst hún hafa staðið í stað og 20% finnst hún hafa þró­ast til hins betra á síðastliðnum 10 árum.

Mynd/​Pró­sent
mbl.is