Á dögunum fagnaði hekldrottningin Elsa Harðardóttir útgáfu sinnar fyrstu bókar, Hekla, í bókabúð Sölku við Hverfisgötu. Margt var um manninn í útgáfuboðinu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Á dögunum fagnaði hekldrottningin Elsa Harðardóttir útgáfu sinnar fyrstu bókar, Hekla, í bókabúð Sölku við Hverfisgötu. Margt var um manninn í útgáfuboðinu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Í bókinni er að finna ævintýralegar og fallegar uppskriftir að hekluðum leikföngum fyrir yngstu kynslóðina; hringlur fyrir smákrílin, svani, einhyrninga, blómálfa, jólakúlur og margt fleira. Uppskriftirnar henta bæði byrjendum og lengra komnum.
Elsa Harðardóttir er forfallinn heklari og uppskriftir eftir hana hafa meðal annars birst í erlendum handavinnutímaritum. Hún þróaði uppskriftirnar og hugmyndirnar í bókinni í samstarfi við dóttur sína, Lísbeti Hönnuh.
Elísabet Sara Emilsdóttir, Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir og Sólveig Björg Pálsdóttir kíktu í bókabúð Sölku.
Ljósmynd/Aðsend
Í bókinni er að finna margar skemmtilegar uppskriftir.
Ljósmynd/Aðsend
Ólöf Björk Egilsdóttir og Elín Tinna Logadóttir voru í miklu stuði.
Ljósmynd/Aðsend
Bókin er glæsileg.
Ljósmynd/Aðsend
Eggert Gunnþór Jónsson og Birkir Hauksson létu sig ekki vanta.
Ljósmynd/Aðsend
Hilmir Harðarson og Lísbet Hannah Eggertsdóttir voru í góðu stuði.
Ljósmynd/Aðsend
Höfundurinn ánægður með daginn.
Ljósmynd/Aðsend
Elsa var upptekin við að árita bækur.
Ljósmynd/Aðsend
Sigríður Guðmundsdóttir, Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir brostu sína blíðasta.
Ljósmynd/Aðsend
Leikföngin eru yndisleg.
Ljósmynd/Aðsend
Lísbet Hannah var stolt af móður sinni.
Ljósmynd/Aðsend
Marín Björt Valtýsdóttir var í góðum gír.
Ljósmynd/Aðsend
Lena og Gísli kíktu í útgáfuboðið.
Ljósmynd/Aðsend
Elsa skálaði með gestum.
Ljósmynd/Aðsend
Anna Lea Friðriksdóttir starfsmaður hjá Sölku
Ljósmynd/Aðsend
Margt var um manninn í bókabúð Sölku.
Ljósmynd/Aðsend
Uppskriftirnar eru fjölbreyttar og henta öllum, bæði byrjendum og lengra komnum.
Ljósmynd/Aðsend
Gestum var boðið upp á dýrindis kræsingar.
Ljósmynd/Aðsend
Lísbet Hannah hélt litla ræðu.
Ljósmynd/Aðsend
Sigríður Guðmundsdóttir kynnti sér leikföngin.
Ljósmynd/Aðsend