Frændurnir Alexander Björnsson og Halldór Snær Óskarsson urðu óvænt TikTok-stjörnur eftir að þeir fóru að taka upp sketsa fyrir TikTok-reikning Húsasmiðjunnar.

Alexander og Halldór, eða Dóri eins og hann er oftast kallaður, hafa starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2017. Á daginn starfa þeir báðir í málningardeildinni en bregða sér hins vegar í hlutverk grínista á kvöldin og taka upp bráðfyndna sketsa sem hafa slegið rækilega í gegn á TikTok.
Í nýjasta myndbandi frændanna taka þeir fyndinn snúning á miklu álagi í versluninni sem fylgir jólunum. Í byrjun myndbandsins er Dóri önnum kafinn við að raða í hillur þegar fjöldi viðskiptavina keppist um að ná athygli hans og fá aðstoð með hina ýmsu hluti og vörur í versluninni.
Á endanum verður álagið svo mikið að Dóra fallast hendur og hann flýr inn á kaffistofu þar sem frændi hans tekur heldur betur vel á móti honum.