Fjölskyldu Möhsu Amini, írönsku-kúrdísku stúlkunnar sem lést í haldi lögreglunnar árið 2022, hefur verið meinað að ferðast til Frakklands til þess að fá afhent mannréttindaverðlaun ESB, Sakharov-verðlaunin, sem Amini hlaut í ár.

Amini lést 22 ára að aldri 16. september árið 2022 í haldi lögreglu vegna brots hennar á ströngum reglum Írana um notkun hijab-slæðu. Í kjölfar andláts hennar brutust út hörð mótmæli gegn klerkastjórninni. Stjórninni var harðlega mótmælt í Íran, en einnig út um allan heim.
Í október veitti Evrópuþingið Amini Sakharov-verðlaunin.
Chirinne Ardakani, lögmaður fjölskyldu Amini, sagði við AFP-fréttaveituna í dag að foreldrum og bróður Amini hafi verið „bannað að ganga um borð í flug sem átti að flytja þau til Frakklands til að fá afhent Sakharov-verðlaunin“.
Ardakani greindi frá því að fjölskyldunni var bannað að yfirgefa Íran og vegabréfin tekin af þeim, þrátt fyrir að þau voru með gild vegabréfsáritun.
Lögmaðurinn sagði að írönskum stjórnvöldum hafi aldrei verið jafn mikið í mun að koma í veg fyrir að fjölskyldur fórnarlambanna ræddu við alþjóðasamfélagið.
Sakharov-verðlaunin áttu að vera veitt við hátíðlega athöfn 13. desember. Þeim fylgja 50 þúsund evrur, eða um sjö og hálf milljón íslenskra króna, í verðlaunafé.