Heba Guðrún Nielsen gerði sér lítið fyrir og gerði fallegasta Eiffelturn sem sést hefur hér á landi úr piparkökum en Eiffelturninn er eitt frægasta mannvirkið í París í Frakklandi á dögunum. Nú er Heba búin að toppa sig og gera Tower Bridge brúnna frægu í London úr piparkökum með stórkostlegri útkomu.

Þvílík dýrð að sjá meistaraverkið hennar við hlið Eiffelturnsins sem hún gerði fyrst og skarta báðar byggingarnar sínu fegursta heima hjá henni. Heba segir að nú megi jólin koma þar sem jólaþorpið hennar er tilbúið. Heba býr yfir augljóslega yfir miklu listrænum hæfileikum það staðfesta verkin hennar, Eiffelturninn og Tower Bridge brúin gerð úr piparkökum en hún hannaði bæði verkin sín sjálf frá grunni, setti saman og skreytti.
Heba Guðrún sýnir lesendum hér hvernig Tower Brigde varð til, skref fyrir skref.
„Planið hjá mér í ár var alltaf að gera 2 piparkökuhús. Þegar ég kláraði Eiffelturninn þá byrjaði ég strax á nýja húsinu sem er Tower Bridge í London. Ég byrja bara eins og ég byrjaði með Eiffelturninn á því að skera allt út í pappa.“
„Ég þurfti að passa vel að brúin myndi passa við hliðina á turninum. Síðan skar ég út formin á brúnni á þykkan pappír. Það var mikið einfaldara að skera út brúnna vegna þess það eru miklu færri partar.“
„Ég þurfti að plana mjög vel þetta hús, hvernig ég ætti að koma seríunni inn í húsið og þurfti að passa og gera ráð fyrir seríunni á formin. Síðan byrjaði ég að baka brúnna. Ég notaði piparkökudeigið frá Ikea, Það er bæði ódýrt og mjög einfalt að nota það. Síðan var bara að baka alla bitana. Þetta tók mig smá tíma að gera vegna þess það eru svo mikið af litlum bitum í þessu húsi.“
„Stundum getur verið erfitt að ná alveg beinum línum þegar búið er að baka deigið en mér finnst best að setja það inn í frysti yfir nótt þegar ég er búin að skera allt út og baka það svo. Ef eitthvað kemur út aðeins breiðara en það á að vera nota ég beittan hníf og raspa hliðarnar niður. Ég skreytti síðan allar hliðarnar og mér langaði að gera múrsteina á húsið og reyndi mitt besta og gerði það með kremi.“
„Ég setti síðan turninn saman með hjálp frá mömmu og það tók mig heila tvo daga að setja verkið saman,“ segir Heba Guðrún og brosir.
„Síðan skreytti ég turninn með kremi á öllum hliðum og setti síðan litla slaufu á brúna til þess að hafa hana í stíl við Eifellturninn.“
„Ég gerði síðan lítil grindverk úr kremi, þá geri ég grindverkin eins og ég vil þau á bökunarpappír og leyfi því að þorna yfir nótt og nota síðan spaða til þess að ná þeim af pappírnum og festi þau síðan á húsið með kremi,“ segir Heba Guðrún og bætir við að nú sé jólaþorpið hennar í ár loksins tilbúið.