Landsbjörg leggur nú allt í sölurnar til að tryggja áframhaldandi fjármögnun á endurnýjun björgunarskipaflotans, að því er fram kemur í síðasta blaði 200 mílna. Björn J. Gunnarsson, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, segir ekkert í hendi með fjármögnun verefnisins.

Alls hefur tekist að smíða þrjú ný skip af þrettán og er nú aðeins eitt skip í smíðum hjá KewaTec í Finnlandi. Samningurinn við skipasmíðastöðina er háður því lágmarki að eitt skip sé í smíðum hverju sinni og er talið varða öryggi sjófarenda að takist að halda dampi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur þrettán sjóbjörgunarskip og eru þau gerð út frá plássum um allt land og sinna þau mikilvægu hlutverki í að tryggja öryggi sjófarenda sem og í öðrum öryggisverkefnum. Skipin eru þó mörg komin til ára sinna og var ákveðið að undirbúa endurnýjun þeirra árið 2017. Smíði skipanna var boðin út og hófst smíði síðari hluta 2021. Fyrsta skipið, Þór, var svo afhent haustið 2022.
„Við erum komin með þrjú skip og er verið að smíða það fjórða núna, það verður afhent á haustmánuðum 2024. Það mun fara á Rif og leysa þar af 40 ára gamalt skip. Þá eru komin fjögur af þrettán skipum sem stendur til að endurnýja,“ segir Björn.
Spurður um stöðu fjármögnunar verkefnisins svarar hann: „Staðan er að það eru samtöl í gangi en ekkert í hendi. Þetta verkefni ræðst af fjármögnuninni og þetta er stærsta fjárfesting sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur farið í í hundrað ára ferli, hvert skip kostar um 300 miljónir. Þetta stendur og fellur með þessum samtölum og vonandi skila þau árangri.“
Nánar má lesa um málið í síðasta blaði 200 mílna.