„Bjartsýnn á að allir leggist á eitt“

Öryggi sjófarenda | 18. desember 2023

„Bjartsýnn á að allir leggist á eitt“

„Ég er bjartsýnn á að allir leggist á eitt og þetta nái að klárast og að Landsbjörg nái að fjármagna sinn helming kostnaðarins, sem er vissulega stór biti fyrir félagið. Þetta er mikil fjárfesting,“ segir Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra, í Morgunblaðinu í dag um endurnýjun björgunarskipaflotans.

„Bjartsýnn á að allir leggist á eitt“

Öryggi sjófarenda | 18. desember 2023

Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra, kveðst bjartsýnn á …
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra, kveðst bjartsýnn á að Landsbjörgu takist að fjármagna endurnýjun björgunarskipaflotans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég er bjartsýnn á að allir leggist á eitt og þetta nái að klárast og að Landsbjörg nái að fjármagna sinn helming kostnaðarins, sem er vissulega stór biti fyrir félagið. Þetta er mikil fjárfesting,“ segir Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra, í Morgunblaðinu í dag um endurnýjun björgunarskipaflotans.

„Ég er bjartsýnn á að allir leggist á eitt og þetta nái að klárast og að Landsbjörg nái að fjármagna sinn helming kostnaðarins, sem er vissulega stór biti fyrir félagið. Þetta er mikil fjárfesting,“ segir Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra, í Morgunblaðinu í dag um endurnýjun björgunarskipaflotans.

Jón var flutningsmaður þingsályktunartillögunnar um endurnýjun björgunarskipaflotans. „Það er á fjármálaáætlun að fimm næstu björgunarskip eru fjármögnuð að hálfu sem framlag hins opinbera og það er mikill einhugur innan ríkisstjórnarinnar um það.“

Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur unnið að því að endurnýja öll 13 björgunarskip félagsins og hafa fengist þrjú afhent og er eitt í smíðum. Björn J. Gunnarsson, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Landsbjörgu, sagði á dögunum ekkert í hendi með fjármögnun endurnýjun björgunarskipaflotans en að samtö væru í gangi. Hvert skip kostar um 300 milljónir króna.

Þegar Jón er spurður hvort öflugri björgunarskip geti ekki einnig skipt sköpum við öryggi landsins segir hann það vera. „Þau eru bein framlenging á Landhelgisgæslunni og það myndi kosta gríðarlega mikið ef ríkið ætti að fara að reka þennan viðbótarrekstur.“

mbl.is