Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur hætt að rannsaka meint lögbrot Artic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Patreksfirði í ágúst. Ekki var talinn grundvöllur til að halda rannsókninni áfram.

Frá þessu greinir lögreglan á Vestfjörðum í færslu á bandaríska miðlinum Facebook. Málið varðar meint brot á 22. gr. laga um fiskeldi nr. 71/2008 vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst.
Matvælastofnun fór fram á opinbera rannsókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm á lögum um fiskeldi eftir að tilkynnt var um tvö göt á kví fyrirtækisins við Kvígindisdal í Patreksfirði.
„Með bréfi lögreglustjóra 19. desember [þriðjudag] var rannsókn hætt, þar sem ekki er talinn grundvöllur til að halda henni áfram, þar sem talið var að gögn málsins bæru ekki með sér að umbúnaður við kvína hafi verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis sakbornings og sakir séu miklar, í skilningi 22. gr. sömu laga, eins og áskilið er,“ skrifar lögreglan.