Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er byrjuð að mæta í ræktina aftur eftir fæðingu sonar hennar og trommuleikarans Travis Barker, en hann kom í heiminn fyrir sjö vikum síðan.

Drengurinn er fyrsta barn Kardashian og Barker saman, en fyrir á Kardashian þrjú börn með Scott Disick og Barker tvö börn og eitt stjúpbarn með Shönnu Moakler.
Í vikunni fór Kardashian á fyrstu æfinguna eftir fæðinguna og leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast með. Hún birti myndband af sér á göngubretti og sagðist hafa gengið í 30 mínútur rólega í halla. „Engin pressa mömmur, líkami ykkar er enn að jafna sig. Þetta er ekki kapphlaup,“ skrifaði hún við myndina.
Kardashian er þekkt fyrir að leggja mikla áherslu á heilsuna og taka hlutina alla leið, en fyrr á árinu deildi hún morgunrútínu sinni með aðdáendum sínum og var í kjölfarið gagnrýnd og sögð vera gjörsamlega úr takt við umheiminn.
Þar sagði hún hreyfingu vera ómissandi hluta af rútínu sinni og að hún reyni að æfa sex sinnum í viku.