Hárið getur gjörbreytt útliti fólks, hvort sem það er klippingin, liturinn eða síddin. Almennt þykir hárfagurt fólk bera með sér einstakan þokka og sjarma, en þrátt fyrir að marga dreymi um að skarta fallegum og heilbrigðum lokkum má ekki gleyma því að heilmikil vinna getur fylgt því að viðhalda þeim.

Smartland tók saman lista yfir hárprúðasta fólk landsins!
Einkaþjálfarinn og sálfræðineminn Telma Fanney Magnúsdóttir er með guðdómlega lokka. Hún segist vera með náttúrulega liðað hár og leggur mikla rækt við hárumhirðu sína.
Förðunarfræðingurinn Ragnheiður Júlíusdóttir er með ekki bara með glæsilega lokka heldur sérlega fallegan hárlit.
Dansarinn og pílates þjálfarinn Margrét Hörn Jóhannsdóttir er með fallegt hár og dásamlegar krullur sem marga dreymir um.
Það er ekki hægt að gera lista yfir hárprúðasta fólk landsins án þess að hafa sjarminn Rúrik Gíslason á listanum. Hárið á honum hefur vakið athygli víðsvegar um heiminn – svo mikla að hann hefur verið í samstarfi við eitt heitasta hártækjafyrirtæki heims, Dyson.
Fyrirsætan Magdalena Sara Leifsdóttir er með einstaklega fallegt hár og guðdómlegan hárlit.
Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir er með sérlega sjarmerandi hárlit.
Leikarinn Styrmir Elí Ingólfsson skartar einstaklega fallegu hári.
Elísabet Helgadóttir, annar eigandi hönnunarverslunarinnar Vest, er með sannkallaða draumalokka.
Knattspyrnumaðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson þykir afar hárprúður.
Fyrirsætan Birta Abiba Þórhallsdóttir er með einstaklega fallegt hár.
Leikarinn Mikael Emil Kaaber er með sjarmerandi lokka.
Fyrrverandi fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir er með glæsilega lokka og afar fallegan hárlit.
Leikkonan Aldís Amah Hamilton skartar einkar fallegu hári.
Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson er einstaklega hárprúður.
Tónlistarkonan Una Torfadóttir er með afskaplega fallegt hár og hárlit.
Handboltamaðurinn Bjarki Már Elíasson er ekki bara þekktur fyrir flotta takta inni á handbolavellinum heldur líka fyrir flott hár!
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko, er án efa hárprúður enda hugsar hann vel um útlitið.