Bandarískar hersveitir skutu niður á annan tug árásardróna og nokkrar eldflaugar sem uppreisnarmenn Húta í Jemen skutu á skip á Rauðahafinu, að sögn utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna.

„Það urðu engar skemmdir á skipum á svæðinu né tilkynnt um nein meiðsl á fólki,“ segir í færslu bandaríska hersins á X.
Fyrr í kvöld lýstu Hútar á hendur sér loftárás á flutningaskip í Rauðahafinu í dag. Einnig sögðust þeir hafa beint drónaárás að hernaðarlega mikilvægum innviðum Ísraelshers í norðurhluta Ísraels.
Hútar hafa stundað þrálátar eldflauga- og drónaárásir á flutningaskip frá því stríðið á milli Ísraels og hryðjuverkasamtakanna Hamas hófst þann 7. október en síðustu vikur hafa árásirnar aðeins færst í aukana.
Hútar eru studdir af klerkaveldinu Íran og segir bandaríska varnarmálaráðuneytið að þessar árásir Húta séu gerðar með blessun Írans.